143. löggjafarþing — 55. fundur,  23. jan. 2014.

málefni framhaldsskólans.

[11:48]
Horfa

mennta- og menningarmálaráðherra (Illugi Gunnarsson) (S):

Virðulegi forseti. Fyrst hvað varðar laun kennara er nokkuð síðan ég hef lýst því yfir á opinberum vettvangi oftar en einu sinni og oftar en tvisvar að ég telji að laun kennara þurfi að hækka. Það er alveg óþarfi fyrir hv. þingmann að kalla eftir því sérstaklega, það liggur fyrir á opinberum vettvangi.

Ég vil byrja á að þakka þessa umræðu og ítreka þakkir mínar til málshefjanda, hv. þingmanns, fyrir að hafa vakið máls á mikilvægu máli. Ég tel að það séu mikil tækifæri fram undan fyrir okkur, tækifæri til að bæta menntakerfið okkar, ekki vegna þess að það sé svo hræðilega vont, þvert á móti, það er margt mjög vel gert í íslensku menntakerfi á öllum skólastigum, en það eru líka og alveg augljóslega tækifæri fyrir umbætur, reyndar líka nauðsyn. Það sem sú hvítbókarvinna sem hér hefur verið nefnd gengur út á er þetta tvennt, annars vegar læsi sem snýr þá að grunnskólanum fyrst og síðast og hins vegar endurskipulagning á námi á framhaldsskólastigi. Með öðrum orðum þarf áherslan á læsi og ákveðna grunnfærni að vera til staðar upp úr grunnskólakerfinu. Það er ekki svo að eitthvert val sé á milli þess að hafa skapandi og lifandi skólasamfélag annars vegar og hins vegar að nemendur nái tökum á ákveðinni grunnfærni. Það er ekki þverstæða í því. Báðir þeir þættir verða að vera til staðar til að við getum menntað unga fólkið okkar fyrir það samfélag sem bíður þess.

Hvað varðar námstímann er augljóst að öllum öðrum þjóðum tekst að klára þennan undirbúning fyrir háskólanám á annaðhvort 13 eða 12 árum. Við getum gert það sama. Þá sný ég aftur að því, og það er lykilatriði, ég minni á það, hvernig þetta snýr að nemandanum. Hversu gamall er nemandinn þegar náminu lýkur? Það er það sem þetta snýst um, ekki um sparnað þótt auðvitað sé ágætt að geta nýtt peningana sem best. (Forseti hringir.) Spurningin er: Hversu gamall er íslenskur námsmaður við lok framhaldsskólans miðað við námsmenn annarra landa? Núna eru þeir að minnsta kosti að meðaltali árinu eldri.