143. löggjafarþing — 55. fundur,  23. jan. 2014.

fríverslunarsamningur Íslands og Kína.

73. mál
[13:58]
Horfa

Árni Þór Sigurðsson (Vg):

Herra forseti. Hér er komin til umfjöllunar tillaga til þingsályktunar um að heimila ríkisstjórninni að fullgilda fyrir Íslands hönd fríverslunarsamning milli ríkisstjórnar Íslands og ríkisstjórnar Alþýðulýðveldisins Kína, sem undirritaður var 15. apríl á síðasta ári.

Það er rétt að byrja á því að undirstrika, eins og kom reyndar fram í máli hv. framsögumanns, formanns utanríkismálanefndar, hv. þm. Birgis Ármannssonar, að vinna að þessum fríverslunarsamningi hefur staðið yfir alllengi og hafa ýmsar ríkisstjórnir komið að vinnu við samninginn. Á síðasta kjörtímabili var gangur viðræðnanna kynntur með reglubundnum hætti í utanríkismálanefnd. Nefndin fékk því tækifæri til þess að fylgjast með gangi málsins. Hún fékk að sjá hvaða sjónarmið það væru sem væru til úrlausnar og ekki síður hvaða álitamál komu upp, sem voru sumpart snúin í viðræðum Íslands og Kína í tengslum við fríverslunarsamninginn.

Ég vil segja þetta í ljósi þess að ég gegndi formennsku í utanríkismálanefnd á síðasta kjörtímabili og kom að því leyti nokkuð að umræðu um framgang þessa máls á þeim tíma. Ég er stuðningsmaður þess að við gerum fríverslunarsamning við Kína á þeim grunni sem hér er lagt til.

Eins og hv. þm. Birgir Ármannsson rakti er fríverslunarsamningurinn að formi til með svipuðu sniði og aðrir fríverslunarsamningar sem Ísland hefur gert, bæði í eigin nafni og á grundvelli aðildar okkar að fríverslunarsamtökum Evrópu, EFTA, þó að það séu nokkur frávik, eins og hann rakti í máli sínu, sem ég þarf ekki að fara út í sérstaklega. En ég árétta þó að samningurinn er frábrugðinn að því leyti að hann hefur engar breytingar í för með sér varðandi heimildar Kínverja til fjárfestinga á Íslandi og veitir heldur engar auknar heimildir til komu kínversks vinnuafls hingað til lands umfram það sem heimilt er samkvæmt gildandi lögum og reglum. Þar af leiðandi á augljóslega ekki það sama við hér og t.d. innan Evrópska efnahagssvæðisins.

En því er ekki að leyna að þau sjónarmið sem helst hafa komið upp og ollu því að andstöðu gætir við þennan samning, til að mynda í ýmsum umsögnum sem utanríkismálanefnd bárust, má rekja til umræðunnar um stöðu mannréttindamála í Kína. Það er mjög eðlilegt að menn fari þess vegna rækilega yfir það mál og horfi á stöðu mannréttindamála í Kína en það þarf líka að setja málið í víðara samhengi við það hvernig menn tengja saman samskipti við ríki þar sem mannréttindamálum er áfátt, bæði með tilliti til viðskiptatengsla, menningartengsla og pólitískra tengsla og tengsla almennt. Þessi tvö ólíku sjónarmið eru rakin stuttlega í nefndaráliti nefndarinnar. Annars vegar segir að aukin viðskipti og tengsl við umheiminn auki hagsæld og lífskjör manna og opni augu stjórnvalda sem og almennings fyrir gildi mannréttindamála, þess vegna geti það haft jákvæð áhrif að auka samskiptin eða með þeim hætti sem fríverslunarsamningurinn gerir, og þá um leið að ef menn einangra ríki geti það frekar komið niður á lífskjörum almennings og geti haft í för með sér neikvæð áhrif á stöðu mannréttindamála í viðkomandi ríki.

Það er annað sjónarmiðið. Hins vegar er gagnstætt sjónarmið sem gengur út á að ekki eigi að veita stjórnvöldum í ríkjum þar sem mannréttindabrot eiga sér stað það sem menn kalla einhvers konar viðurkenningu eða lögmæti með því að gera alþjóðlega samninga um viðskipti. Þar að auki gæti ábati af slíkum samningum frekar fest í sessi stjórnvöld sem virða mannréttindi að vettugi.

Þessi sjónarmið takast á og má alveg færa fyrir því rök að í báðum tilfellum hafi menn sitthvað til síns máls, það þarf auðvitað að vega og meta.

Ég get bara sagt það fyrir mína parta að ég er almennt þeirrar skoðunar að aukin samskipti milli ríkja séu til bóta. Ég tel að þegar í hlut eiga ríki þar sem mannréttindamál eru bágborin sé það almennt betra að ríki sem betur eru sett hvað þetta snertir eigi samskipti og reyni að beita áhrifum til þess að bæta stöðu almennings í þeim löndum sem um er að ræða.

Þó verður auðvitað að segja að það er ekki endilega alveg einhlítt að það eigi alltaf við. Menn verða að vera opnir fyrir því að stundum verði að loka á samskipti við ríki. Skýrasta dæmið úr seinni tíð er staða mannréttindamála í Suður-Afríku á sínum tíma, aðskilnaðarstefnan, þegar má segja að alþjóðasamfélagið, a.m.k. þau ríki sem virða og reyna að halda mannréttindum í heiðri, ákváðu að grípa til viðskiptaþvingana gagnvart Suður-Afríku til þess að knýja fram stefnubreytingu stjórnvalda þar. Auðvitað gerðist það ekki bara allt í einu. Mikið hafði gerst í samskiptum þessara ríkja um langan tíma og mikill þrýstingur hafði verið í gangi sem ekki hafði borið árangur. Þá var gripið til þessa ráðs og má segja að viðskiptaþvinganirnar hafi að lokum fellt aðskilnaðarpólitíkina í Suður-Ameríku.

Þess vegna segi ég það að menn geta ekki sagt að það geti aldrei átt við að loka á samskipti eða einangra ríki til þess að knýja fram breytingar og umbætur í þágu almennings. Engu að síður er það afstaða mín að í meginatriðum eigi menn frekar að stefna að auknum samskiptum og bættum samskiptum og nýta þau til þess að reyna að hafa áhrif til umbóta og bæta aðbúnað almennings í viðkomandi ríkjum.

Það er afstaða mín í því máli sem hér liggur fyrir. Ég tek undir með hv. þm. Birgi Ármannssyni; að sjálfsögðu geta menn velt því fyrir sér varðandi ríki eins og Kína hvort viðskiptasamningur, fríverslunarsamningurinn sem slíkur, skipti þá sköpun í því hvernig við hegðum samskiptum okkar við Kína. Hv. þingmaður velti hér upp hlutum eins og stjórnmálasambandi og pólitískum tengslum. Eigum við að hafa pólitísk tengsl eins og stjórnmálasamskipti við ríki ef okkur mislíkar hvernig þau halda á mannréttindamálum sínum? Á meðan við gerum það, og mér vitanlega er ekki mikil umræða um að skera eigi á slík tengsl, ég hef ekki orðið var við hana, finnst mér ekki alveg rétt að taka þennan fríverslunarsamning og segja: Það er hann sem breytir öllu í þessu efni og við viljum ekki staðfesta hann vegna stöðu mannréttindamála.

Ég er alls ekki á því, ég vil heldur frekar nota samskiptin að þessu leyti til, nota þau tæki sem samningur af þessum toga og viðaukar við hann gefa okkur til þess að halda áfram umræðu um stöðu mannréttindamála. Ég ætla að leyfa mér það í þessari umræðu að vísa til skoðanaskipta sem áttu sér stað að ég hygg í morgun um Ólympíuleikana í Sochi og það hvernig íslenskir ráðamenn mundu hugsanlega taka upp stöðu mannréttindamála í Rússlandi af því tilefni. Þar kom fram að menn telja að tækifæri sé til þess að taka upp stöðu þeirra mála með samskiptum af þeim toga sem eru menningarlegs eðlis eða íþróttalegs eðlis án þess að menn geri þá kröfu um að skera á önnur tengsl eða skera á tengsl við Rússland vegna þess að mönnum mislíkar hvernig staðið er að mannréttindamálum þar.

Ég skrifaði undir nefndarálit utanríkismálanefndar með fyrirvara. Það kemur fram í nefndarálitinu að fyrirvarinn lýtur að samkomulagi Íslands og Kína um samstarf á sviði vinnumála, að það verði formlega samþykkt, en viljayfirlýsing um samvinnu á sviði vinnumála er birt hér sem fylgiskjal með þessu nefndaráliti. Það kom einmitt fram í umsögn Alþýðusambandsins sem barst nefndinni í nóvember síðastliðnum að Alþýðusambandið legðist gegn staðfestingu á þessum fríverslunarsamningi vegna stöðu vinnuréttarmála og kom á framfæri við viðkomandi ráðuneyti sjónarmiðum um það hvernig mætti taka á þeim málum með sérstakri viljayfirlýsingu. Að því var síðan unnið og nú liggja fyrir drög að þeirri viljayfirlýsingu sem birt eru hér sem fylgiskjal.

Fyrirvari minn lýtur að því að þessi viljayfirlýsing hefur ekki hlotið staðfestingu enn sem komið er eftir því sem ég best veit, hafði ekki hlotið það þegar nefndarálitið var frágengið, en ég tel að með þeirri viljayfirlýsingu sé einmitt mætt þeim sjónarmiðum sem verkalýðshreyfingin hér á landi hefur sett fram í tengslum við þetta mál þar sem skuldbindingar ríkjanna vegna aðildar að Alþjóðavinnumálastofnuninni eru áréttaðar og þar með talið skuldbindingar samkvæmt yfirlýsingu Alþjóðavinnumálastofnunarinnar um grundvallarviðmið og réttindi við vinnu. Í þessari viljayfirlýsingu er líka búið til ákveðið ferli um það hvernig hægt sé að taka upp viðræður um túlkun og beitingu viljayfirlýsingarinnar og til að knýja á um að þau mannréttindi sem tengjast vinnuréttindamálum sérstaklega að þau séu virt. Ég tel að með því sé komið til móts við þessi sjónarmið.

Svo má geta þess almennt í lokin að því er varðar mannréttindamál að við Íslendingar eigum auðvitað í samstarfi og samskiptum við fjölmörg ríki sem við teljum að virði ekki grundvallarmannréttindi. Það gerum við í ýmsum bæði í tvíhliða samskiptum en líka í gegnum ýmis fjölþjóðleg samtök. Auðvitað er nærtækast að nefna Sameinuðu þjóðirnar í þeim efnum, að sjálfsögðu, en líka ýmsar aðrar stofnanir eins og Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu. Þar eigum við samskipti við fjölmörg ríki þar sem við teljum að staða mannréttindamála sé ekki fullnægjandi. Þá er það spurningin hvort við reynum ekki að beita áhrifum okkar þar til þess að láta gott af okkur leiða til þess að bæta stöðuna frekar en að loka á slík samskipti.

Ég vildi láta þessi sjónarmið koma fram í umræðunni. Ég tel sem sagt að komið hafi verið til móts við meginathugasemdir og meginástæður þess að verkalýðshreyfingin lagðist upphaflega gegn staðfestingu þessa fríverslunarsamnings með viljayfirlýsingunni sem hér fylgir. Eftir því sem ég hef skilið best af talsmönnum Alþýðusambandsins telur Alþýðusambandið að þessi viljayfirlýsing sé fullnægjandi og komi til móts við þau sjónarmið sem þeir hafa haldið á lofti. Að því sögðu og með þeim fyrirvara sem ég hef gert grein fyrir mun ég greiða atkvæði með þessum fríverslunarsamningi.