fríverslunarsamningur Íslands og Kína.
Virðulegi forseti. Ég er með svolítið undarlega tilfinningu gagnvart þessum samningi vegna þess að ég á bágt með að vona að afleiðingarnar af honum verði mjög góðar. Ef afleiðingar samningsins verða of góðar þýðir það að hann verður of mikilvægur. Ef samningurinn verður of mikilvægur getur Kína væntanlega notað það sem samningstól. Ef við komum kannski með eitthvað sem Kínverjar kalla dylgjur og leiðindi, segjum um Tíbet eða Taívan, gæti Kína alltaf beitt þessum samningi sem þrýstingstóli gagnvart okkur. Þessu hef ég talsverðar áhyggjur af. Það er gott og blessað að við höfum samræðuvettvang við Kína um mannréttindamál þar almennt, en við erum 320 þúsund og Kínverjar eru um 1,4 milljarðar eða hvað það er í dag, það er erfitt að fylgjast með því og aflsmunurinn er svo gríðarlegur.
Ég þori að fullyrða að talsvert margir Kínverjar vita ekki einu sinni að Ísland er til og þeim væri eiginlega alveg sama þótt þeir væru ekkert að semja við okkur. Aflsmunurinn er svo gígantískur, hann er svo svakalegur að ég velti fyrir mér hvenær afleiðingarnar af þessum samningi verði orðnar það góðar að þær verði beinlínis hættulegar. Ég velti því sérstaklega fyrir mér hvort þetta hafi verið rætt á nefndarfundum, hvort heldur á þessu kjörtímabili eða því síðasta.