143. löggjafarþing — 55. fundur,  23. jan. 2014.

fríverslunarsamningur Íslands og Kína.

73. mál
[14:13]
Horfa

Árni Þór Sigurðsson (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir þessar vangaveltur. Þetta voru kannski meiri vangaveltur en beinlínis beinharðar spurningar, nema hvort þetta álitaefni sem hv. þingmaður gat um hefði verið sérstaklega rætt á fundum nefndarinnar. Það sem við ræddum á fundum nefndarinnar voru almennt þau sjónarmið, sem ég rakti áðan og hv. formaður nefndarinnar gerði líka, um það hvort blanda ætti saman viðskiptasamningum af þessum toga og stöðu mannréttindamála og almennum pólitískum samskiptum við ríki eins og Kína eða ekki. Það var auðvitað rætt sérstaklega. En vangaveltur hv. þingmanns um það hvort samningurinn gæti orðið svo góður að við sæjum okkur ekki fært eða það mundi ekki þjóna okkar viðskiptalegu hagsmunum, ef ég reyni að lesa út úr orðum hv. þingmanns, að beita okkur gagnvart mannréttindamálum í Kína, voru kannski ekki beint viðfangsefnið.

Hv. þingmaður gat þess líka að við værum fámenn og Kínverjar væru fjölmennir. Það veit nú öll heimsbyggðin. En mín reynsla er samt sú að um leið og maður kemur til Kína og segir Bing Dao vita allir Kínverjar hvað það er og þekkja það.

Ég ítreka þau sjónarmið sem ég setti fram áðan. Ég tel að þrátt fyrir allt sé betra fyrir okkur að auka samskiptin. Ég tel auðvitað ekki að fríverslunarsamningurinn í sjálfu sér, einn og sér, breyti stöðu mannréttindamála í Kína á hvorugan veginn, ef svo má segja. En hann gefur okkur kannski aukin tækifæri til að taka upp ýmsa þætti í mannréttindamálum í Kína, sérstaklega eins og hér er verið að leggja upp á sviði vinnuréttarmála. Okkar pólitísku tengsl við Kína að öðru leyti gefa okkur auðvitað öll tækifæri til þess að taka upp stöðu þeirra mála, burt séð frá þessum fríverslunarsamningi. Ég tel að við eigum að geta nýtt okkur það.