143. löggjafarþing — 55. fundur,  23. jan. 2014.

fríverslunarsamningur Íslands og Kína.

73. mál
[15:53]
Horfa

Össur Skarphéðinsson (Sf):

Herra forseti. Hér hefur flest verið sagt sem þarf að segja, margt af mannviti mælt og ég held að þær litskrúðugu skoðanir sem hafa komið fram í dag eigi allar rétt á sér. Ég er sérstaklega þakklátur þeim þingmönnum Pírata sem hafa tekið þátt í umræðunni vegna þess að sjónarmið þeirra eru lögmæt og mikilvægt að þau komi fram í umræðunni. Þannig fúnkerar lýðræðið. Það er hlustað á þær umræður sem fara fram hér.

Við höldum stundum þingmenn sem hér erum, oft á tíðum að rífa okkur niður í rass yfir litlu og stundum stóru, að ekkert sé fylgst með því þegar Alþingi Íslendinga talar um utanríkismál. Ég get fullvissað hv. þingheim um að svo er og þau orð sem falla hér eru grandskoðuð og það skiptir máli að það viðhorf sem ég tel að við þingheimur deilum allur varðandi mannréttindi komi fram.

Að því er mannréttindin varðar eru uppi tvö sjónarmið. Annars vegar það sem mér hefur sýnst hv. þingmenn Pírata fylgja, að það eigi einfaldlega ekki að standa í neins konar sambandi við ríki eins og Kína af því að þar eru vissulega mannréttindi fjarri því að vera komin á sama stig og hjá okkur. Hins vegar er það sjónarmið Amnesty International, mín, hæstv. utanríkisráðherra og obba þingheims að það sé í þágu mannréttinda í Kína að samningur af slíku tagi sé gerður með þeim fylgisamningum sem við hann eru hnýttir, vegna þess að þar eru skapaðir farvegir og gagnvegir til að koma sjónarmiðum á framfæri.

Það kom fram í máli hv. þm. Birgittu Jónsdóttur að hún efast um að það sé hryggsúla í Íslendingum til að láta til sín taka og standa fast á sannfæringu sinni ef efnahagslegir hagsmunir mundu með einhverjum hætti hnika til annarrar áttar. Ef hv. þingmaður og aðrir þeir sem eru svipaðrar skoðunar skoða söguna birtist að heita síðustu 25–30 árin, sama hvaða ríkisstjórn er við völd, að menn hafa staðið á ákveðnum sannfæringum. Þegar hér var ríkisstjórn sem Jón Baldvin var utanríkisráðherra í með Framsóknarflokknum meðal annars tók Ísland mjög harða afstöðu í málefnum Eystrasaltsríkjanna, stutt af Sjálfstæðisflokknum þannig að það var þverpólitísk samstaða þrátt fyrir að Íslendingar ættu þá í erfiðum viðskiptasamningum við Sovétríkin sem voru á þeim tíma. Íslendingar stóðu fast á sannfæringu sinni.

Það er ekki langt síðan þingheimur allur stóð fast á sannfæringu sem hann deildi og átti sameiginlega gagnvart Palestínu. Þó lá algerlega skýrt fyrir að öflugasta ríki heims var á móti því sem Ísland var að gera og beitti sér eins og fram hefur komið, þó að vísu, eins og ég hef stundum rakið áður af sérstökum aðstæðum sem sköpuðust og tengjast reyndar málefnum sem ýmsum okkar er hugleikið, Wikileaks, hafi komið upp á þeim tíma sem dró og slævði þungann í þeirri afstöðu.

Ég er algerlega sannfærður um að Ísland mun ekkert slæva eggjar mannréttindavopnsins og þeirra röksemda sem Ísland hefur alltaf flutt fyrir því eftir þennan samning. Ég treysti hæstv. utanríkisráðherra jafn vel og sjálfum mér og forverum okkar til að koma sjónarmiðum Íslendinga í þeim efnum á framfæri og það skiptir einfaldlega máli.

Íslensk stjórnvöld hafa á síðustu árum átt margvísleg samskipti við Kína þar sem mannréttindi hafa verið rædd. Ég hef sjálfur verið viðstaddur tvo fundi þar sem íslenskur forsætisráðherra tók þau mál upp, kannski ekki til að vinna vinsældarkosningar hjá kollega sínum en það var gert. Ég hef þá trú, og hef skýrt það áður með ítarlegum röksemdum, að íslenskir stjórnmálamenn hafi verið miklu skeleggari í að taka upp málstað mannréttinda og þeirra sem þola mannréttindabrot heldur en annarra þjóða. Ég dreg í efa að ráðherrar nokkurra annarra þjóða, a.m.k. í nágrenni við okkur, hafi rætt af jafnmikilli skeleggni og harðfylgni málefni Tíbets við Kína eins og einmitt íslenskir ráðherrar. Þetta er mitt við viðhorf.

Ég tel að við lok þessarar umræðu sem lýkur ferli sem hófst í tíð síðustu ríkisstjórnar sé ástæða til að lofa hæstv. utanríkisráðherra fyrir að hafa verið vaskur og snöggur að koma með samninginn hingað í þingið til samþykktar. Það skiptir máli fyrir íslenska hagsmuni að við náum því að hrinda honum og þeim möguleikum sem hann býr yfir í framkvæmd hið fyrsta. Ég tel líka á þessum tímamótum, því að þetta eru kaflaskipti í utanríkisviðskiptasögu Íslands, að sérstök ástæða sé til að hrósa starfsfólki utanríkisráðuneytisins. Ég þekki það kannski betur en aðrir hversu snögg þau voru og fljót að bylta sér og nýta þau tækifæri sem sérstakar kringumstæður sköpuðu okkur stjórnmálamönnum til að hrinda þessu fleyi af stað sem nú er að sigla til hafnar. Menn eru stundum að velta því fyrir sér hvort því fé sem varið er í okkar litlu en harðsnúnu utanríkisþjónustu sé vel varið. Þessi samningur er til marks um að það voru sérstakar aðstæður, pólitískar aðstæður sem stjórnmálamenn voru fljótir að nýta sér en það var ekki síst vegna harðfylgis samningamanna okkar sem það gerðist sem hv. þm. Birgitta Jónsdóttir taldi að við mundum aldrei ná fram, þ.e. hagsmunum Íslendinga. Það var einfaldlega þannig að við samningagerðina (Gripið fram í.) náðust fram nánast öll þau mál sem Íslendingar báru fyrir brjósti.

Þessir samningar voru í kergju árum saman vegna þess til dæmis að Kínverjar lögðu mjög mikla áherslu á að fá hér leyfi til tímabundins flutnings á vinnuafli sem var langt umfram það sem þjóð eins og Íslendingar getur nokkru sinni fallist á. Okkar samningamönnum tókst ekki bara að koma því út til að tryggja hagsmuni okkar sem smárrar þjóðar heldur náðu þeir lengra en sá fríverslunarsamningur sem var fordæmi beggja þjóða að ýmsu leyti við gerð þessa, þ.e. milli Kína og Nýja-Sjálands, veitti.

Þar var alveg ljóst samkvæmt samningnum sem gerður var 2008, held ég, að hægt var að flytja 1.800 kínverska starfsmenn til Nýja-Sjálands til að vinna í tilteknum störfum, sem að vísu voru skýrt afmörkuð, en það er ekkert slíkt í þessum samningi. Hið eina sem hnígur í þá átt er að Kínverjar hafa heimild til að taka upp möguleika á því að stofna starfshóp þjóðanna tveggja til að ræða hvort þeir geti fengið að flytja takmarkaðan fjölda starfsmanna sem gætu unnið við nálarstungur, við þýðingar úr kínversku og við að kenna kínverskar bardagaíþróttir. En samningurinn er þannig að ef Íslendingar segja nei við því er sá starfshópur ekki einu sinni settur upp. Ég vil því segja að Íslendingar náðu lengra í samningum við Kínverja en fyrri þjóðir sem hafa gert slíka samninga við Kínverja hafa náð.

Ég er einnig þeirrar skoðunar að vinnumálasamningurinn sem núna liggur fyrir, a.m.k. í texta, sé mikilvægur, ekki síst vegna þess að það liggur fyrir að Íslendingar eiga tök á því að til dæmis hleypa fulltrúum verkalýðshreyfingarinnar inn í viðræðuhóp sem af Íslands hálfu færi til viðræðna við Kínverja. Það skiptir máli, sérstaklega miðað við forgrunn umræðna að þessum samningi. Það er ljóst að Alþýðusamband Íslands var samningnum andsnúið í upphafi og er það kannski enn. Fulltrúar þeirra lögðu áherslu á tiltekin sjónarmið og það eru engir betri til að koma þeim sjónarmiðum á framfæri en þeir. Ég tel þess vegna að annars vegar sá farvegur sem felst í hinum reglulega pólitíska „dialog“ millum íslenskra og kínverskra stjórnvalda og var í gadda sleginn með yfirlýsingu forsætisráðherranna, og síðan þetta vinnumálasamkomulag geri það að verkum að Íslendingar eru í miklu betri færum en áður til að koma sjónarmið sínum á framfæri. Þá á ég einkum við mál sem ég tel að skipti miklu fyrir þá umræðu sem hér hefur verið, þ.e. um mannréttindi, um aðbúnað verkafólks, um umhverfisvernd og um sjálfbærni í framleiðslu. Þetta eru þeir þættir sem fram kemur í samkomulagi forsætisráðherranna að eigi að vera til umræðu og annað það sem annar hvor aðilanna telur þörf á að taka upp. Það gefur okkur því mikla möguleika.

Svo segja menn í þessari umræðu: Ísland er svo lítið og rödd Íslands er svo veik að hún hefur ekki áhrif. Þetta er fyrsti samningurinn sem Evrópuþjóð gerir. Aðrir samningar sem verða gerðir á næstu árum munu að sjálfsögðu horfa til þessa samnings. Núna er búið að ljúka samningi svipaðrar tegundar millum Sviss og Kína og þar sjáum við glögg merki um það fordæmi sem í þessu felst. Með öðrum orðum, dropinn holar steininn.

Þegar Lucinda Creighton, sem var Evrópumálaráðherra Írlands, var hér á ferðinni í byrjun árs 2012 lýsti Evrópusambandið því í fyrsta skipti yfir að það hefði hug á því að gera fríverslunarsamning við Kína. Cameron, forsætisráðherra Breta, gaf fyrir tiltölulega skömmu síðan út svipaða yfirlýsingu. Með öðrum orðum er staðan gerbreytt frá því sem var fyrir nokkrum árum þegar Evrópusambandið hafði af ýmsum ástæðum, m.a. mannréttindaástæðum, lítinn áhuga á því að gera fríverslunarsamning við Kína. Það er breytt. Nú spái ég því að tiltölulega fá ár séu þangað til Kínverjar og Evrópusambandið gerir samning sín á milli og nú þegar hafa verið lögð drög að viðræðum um fjárfestingarsamning sem oft og tíðum er undanfari slíks fríverslunarsamnings. Ég er alveg sannfærður um að þá skiptir máli að þegar Kína fór af stað í samningagerð við Evrópuþjóðir þ.e. í samningnum við Ísland, var áhersla á lykilatriði evrópskra þjóða; á umhverfisvernd, á sjálfbærni og á mannréttindi.

Þá mun líka skipta miklu máli það fordæmi sem felst í samningi okkar að gera ráð fyrir hliðarsamningi um vinnumálin. Ég tel að þegar allt er skoðað sé það rétt ákvörðun sem varð niðurstaðan í umsögn Amnesty International, að ekki eigi að leggjast gegn fríverslunarsamningi af þessu tagi og að nota eigi þá stöpla sem í honum felast til að tala máli bættra mannréttinda. Af því að menn hafa talað um það hér að mannréttindi í Kína séu ekki af þeim toga sem Íslendingar almennt geta sætt sig við vil ég samt sem áður þeim til varnar leggja áherslu á að ef menn skoða þróun þeirra mála síðustu 20–30 árin er Kína nútímans allt annað en Kína þeirrar tíðar. Við sjáum þá þróun í gangi og þótt hún sé of hægfara að okkar dómi er alveg ljóst að hún er til staðar. Það til viðbótar fjarskiptabyltingunni, sem að sjálfsögðu eykur áreitið á hið kínverska samfélag, og þegar við bætast öll þau áreiti úr umheiminum sem munu felast í auknum viðskiptum þjóða sem bera mannréttindi fyrir brjósti mun það allt saman verða aflvaki enn meiri jákvæðni í þeirri þróun. Það er mín einlæga skoðun.

Það eru tveir valkostir. Ég tel að meginreglan eigi að vera sú að eiga diplómatísk samskipti fremur en slíta á þau. Það er betra að skapa möguleika til að auka og efla viðræður við önnur ríki.

Ég rifja það bara upp þegar mér var falið af þinginu, af utanríkismálanefnd, sem utanríkisráðherra á þeim tíma að skoða hvort hægt væri að efna til samvinnu á milli þjóða um að setja viðskiptabann á Ísrael vegna framkomu þeirra við Palestínumenn á herteknu svæðunum eða að banna viðskipti við eða slíta stjórnmálasambandi við Ísrael. Mér fannst þetta vera meira en umræðunnar virði en það er sláandi að þegar ég tók þetta upp á hverjum utanríkisráðherrafundinum á fætur öðrum, fór og talaði við Arababandalagið, fór og talaði við helstu stuðningsþjóðir Palestínu, var það einungis ein þjóð sem var á því máli. Menn segja: Það á að tala við þá sem haga sér illa og reyna að beita þrýstingi. Það hefur áhrif að lokum.

Hins vegar við vissar aðstæður tel ég að gagnvart ríkjum sem fremja hermdarvirki nánast dag hvern komi fyllilega til greina það sem gert var gagnvart Suður-Afríku, að slíta viðskiptasamböndum við þau. Ég gæti nefnt Ísrael sem dæmi. En það á ekki að vera meginreglan, tel ég.

Varðandi þennan samning er auðvitað hárrétt sem hér hefur komið fram að hann felur í sér mikla möguleika. Við skulum samt ekki gylla framtíðina of mikið. Það sem er rétt um þennan samning er að hann felur í sér mikil sóknarfæri en þeir ávextir munu ekki spretta af sjálfu sér. Það er algerlega undir atvinnulífinu komið hvort tekst að notfæra þau sóknarfæri í þágu Íslands. Við höfum séð að löndum sem nýlega hafa gert slíka samninga hefur tekist það. Við sjáum til dæmis að samningurinn sem gerður var milli Síle og Kína árið 2006 hefur leitt til þess að viðskipti millum Síle og Kína hafa fimmfaldast og þáttur útflutnings til Kína frá Nýja-Sjálandi hefur aukist um helming frá því árið 2008. Það verður eigi að síður undir okkur komið hvort við getum notfært okkur þessi tækifæri. Þau liggja mjög víða.

90% af útflutningi okkar til Kína eru sjávarafurðir. Í dag er á þeim 10–12% tollur. Það er mjög hár tollur og það er mjög stór múr sem þarf að klífa yfir. Þetta fellur burtu. Það eykur möguleika fyrir okkur til að afsetja sjávarfang í Kína. Það skiptir máli, ekki síst núna á þessum síðustu tímum þegar umhverfisbreytingar í hafi leiða til þess að fiskgengd á norðurslóð er miklu meiri en áður.

Við sjáum að í Barentshafi er kvótaaukning Rússa og Norðmanna jafn mikil og allur sá þorskkvóti sem við gefum út hér á Íslandsmiðum. Þetta var aðeins aukningin í fyrra. Á Íslandi, við sem vorum að veiða undir 200 þúsund tonnum til skamms tíma, ég spái því alla vega að eins og við höfum haldið á okkar málum og út af breytingum í hafinu muni innan fárra ára draga að því að við verðum að veiða miklu meira en áður, kannski 280 þúsund tonn, hugsanlega upp í 300 þúsund tonn. Með öðrum orðum, framboðið úr sjávarútvegi mun stóraukast. Markaðarnir eru kannski ekki að minnka en þeir þurfa að taka við miklu meira magni. Það skiptir máli að fá þarna farveg inn á nýja markaði. Hvað geta Kínverjar í þeim efnum? Ég gæti nefnt ykkur nokkur dæmi.

Mér er mjög minnisstætt samtal sem ég átti við kínverskan fisksölukaupmann sem var að taka að sér fyrir frumkvæði íslensks fyrirtækis, Tritons, að selja grásleppuhveljur sem við höfðum fleygt í hafið. Hann sagði: Fyrst þarf ég að læra hvernig á að matbúa þetta kvikindi sem ég hef aldrei séð áður. Svo skulum við sjá hvort ég geti selt það. Hann byrjaði með einn gám og þremur árum síðar þegar ég hitti hann í Beijing, í apríl 2013, var hann búinn að selja allar þær grásleppuhveljur, 1.000 tonn, sem falla til á Íslandi og var að leggja drög að því í gegnum Ísland að fá allt það magn líka sem fellur til í nágrannalöndunum. Þetta er stórt ríki. Þetta er mikill markaður. Í því ríki er stærsti hópur millistéttar sem nokkurs staðar fyrirfinnst. Þar eru kannski fast að 400 millj. manna sem hægt er að flokka sem millistétt, miklu fleiri en í Bandaríkjunum sem menn horfa til og kínverska millistéttin mun bara stækka. Þetta er þess vegna andlag fyrir útflutning ef við kunnum að notfæra okkur það.

Fyrir utan sjávarútveg er auðvitað margt, margt annað sem er í bígerð og það var athyglisvert að þegar verið var að undirbúa þennan samning voru það ekki síst sprotafyrirtækin, litlu fyrirtækin, hönnuðurnir sem horfðu til hans. Þeir notfæra sér vissulega lægra verð á vinnuafli í Kína til að framleiða fyrir sig en sjá fram á að geta gert það með auðveldari hætti og flutt til Íslands, sem framleiðendurnir eða hönnuðirnir og fyrirtækin nota sem heimamarkað, sem stökkpall út í heim. Það er margt ákaflega jákvætt við þetta.

Ég er sjálfur þeirrar skoðunar að samningurinn muni líka með óbeinum hætti leiða til þess að innan fárra ára verði beint flug á milli Íslands og Kína. Hann skiptir því máli fyrir flugið líka. Ég tel til dæmis að útflutningur á ferskfiski til Kína í tengslum við farþegaflug muni gera það verkum að hægt er að ráðast í það flug miklu fyrr en ella. Tækifærin eru ákaflega mörg en það fer eftir okkur hvort hægt er að spila úr þeim.