143. löggjafarþing — 55. fundur,  23. jan. 2014.

fríverslunarsamningur Íslands og Kína.

73. mál
[16:20]
Horfa

utanríkisráðherra (Gunnar Bragi Sveinsson) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ekki hefur farið fram nein umræða um það eða tekin afstaða til þess hvort bjóða eigi þessum leiðtoga eða einhverjum öðrum til Íslands. Dalai Lama kom hingað og heimsótti Alþingi ef ég man rétt og fékk hér góðar móttökur. Ég held að vel hafi farið á því.

Varðandi Taívan þá eru sem betur fer betri samskipti milli Kína og Taívan en oft hefur verið. Það eru miklar samgöngur þar á milli varðandi ferðamenn og fjárfestingar á báða bóga. Íslensk stjórnvöld hafa hins vegar mjög lengi — ég man nú ekki alveg ártalið, hvenær íslensk stjórnvöld tóku það upp, hvort það var bara þegar við tókum upp stjórnmálasamband við Kína — viðurkennt stefnuna um eitt Kína, með leyfi forseta: One China Policy. Ekki hefur verið tekin nein ákvörðun um að breyta út frá þeirri stefnu þannig að umræðu einhvers konar undir rós um það er ekki rétt að taka hér.