stefna stjórnvalda í áfengis- og vímuefnamálum.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni þessa fyrirspurn. Þetta er mjög þarft umræðuefni sem hann bryddar hér upp á og kallar á, eins og hann gat hér réttilega um, alvarlega og yfirvegaða umræðu. Það getur ekki og á ekki að vera markmið heilbrigðisyfirvalda að refsa þeim sem eru svo ógæfusamir að lenda í krumlunum á fíkniefnum. Það hlýtur fyrst og fremst að vera hlutverk heilbrigðisyfirvalda og kerfisins að reyna að koma þeim til aðstoðar.
Ég vil ítreka það hér sem mína skoðun að heilbrigðisyfirvöld, og raunar flest það góða fólk sem starfar í þeim geira, lítur ekki á fíkla sem glæpamenn heldur fyrst og fremst sem sjúklinga. Einnig held ég að óhætt sé að fullyrða að almennt ríki mjög mikil samstaða um það í þjóðfélaginu og það viðhorf sé uppi og ráðandi að bera virðingu fyrir þeim sem hefur tekist að ráða bót á þeim vanda sem við er að glíma.
Það sem tekur við í framhaldi þeirrar stefnu sem ég staðfesti — nú í desember var hafin vinna við, af hálfu fyrrverandi hæstv. ráðherra, að móta aðgerðaáætlun til næstu tveggja ára þar sem fjöldi aðila kemur vonandi að málum, hvort heldur þar er um að ræða ráðuneyti eða stofnanir á vegum heilbrigðisyfirvalda. Ég fagna þeim áhuga sem hv. þingmaður sýnir á því verki sem fram undan er.