143. löggjafarþing — 56. fundur,  27. jan. 2014.

stefna stjórnvalda í áfengis- og vímuefnamálum.

[15:33]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Kristján Þór Júlíusson) (S):

Virðulegi forseti. Ég sé ástæðu til að taka undir það sem hv. þingmaður nefndi varðandi gríðarlega merkilega starfsemi sem Rauði krossinn hefur með höndum undir heitinu Frú Ragnheiður. Það er gríðarlega mikil vinna og merkileg sem þar er unnin. Ég held að það sé líka ágætt fyrir okkur, þegar við erum að ræða hvort tveggja um refsingar og afglæpavæðingu þess heims sem þarna er um að ræða, að hafa í huga að kerfið sjálft ber líka allnokkra ábyrgð því. Þetta eru ekki allt saman einhver efni sem smyglað hefur verið til landsins eftir krókaleiðum heldur er líka töluvert af svokölluðu læknadópi í umferð sem full ástæða er til að taka betur á en gert hefur verið.