143. löggjafarþing — 57. fundur,  27. jan. 2014.

vernd afhjúpenda.

264. mál
[17:11]
Horfa

forsætisráðherra (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (F):

Virðulegur forseti. Hv. þingmaður spurði sérstaklega um breytingu á stjórnsýslulögum með vísan til samþykktar Alþingis frá 2010 og þess vegna rakti ég það sérstaklega. Það þýðir hins vegar ekki að þetta sé ekki eitthvað sem rétt sé að huga að annars staðar í einkageiranum og almennt. Þó að þetta tiltekna frumvarp sé til þess ætlað að mæta þeim samþykktum sem voru gerðar hérna sérstaklega varðandi opinbera geirann, þ.e. stjórnsýsluna, mun það ekki koma í veg fyrir að hugað verði að þessum málum almennt.

Með öðrum orðum tel ég, eins og hv. þingmaður, að ástæða sé til að gera það.