143. löggjafarþing — 58. fundur,  28. jan. 2014.

ummæli þingmanns í umræðum um störf þingsins.

[14:12]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Ég tek undir það sem hér hefur verið sagt og varðar skipan í stjórn RÚV. Sú uppákoma sem varð hér á sumarþingi snerist auðvitað um samkomulag sem síðan var dregið til baka þegar reynt var að semja um þinglok og ekkert óeðlilegt núna, þegar búið er að fresta kosningu í stjórn RÚV, að þetta sé rætt og reynt að ná öðru samkomulagi. (Gripið fram í.)

Hins vegar langar mig að vitna í 66. gr. þingskapalaga þar sem stendur, með leyfi forseta:

„Ræðumaður skal jafnan víkja ræðu sinni til forseta eða fundarins en eigi ávarpa nokkurn einstakan þingmann.“

Það sem ég átti við áðan var að ég leit svo á að hv. þingmaður sem beindi hér orðum sínum að tilteknum öðrum þingmanni, í umræðu um störf þingsins, gerði það ekki bara með því að vitna í hann heldur var hann — eða ég alla vega heyrði það svoleiðis — nánast að ræða við hann án þess að hann gæti svarað fyrir sig undir liðnum fundarstjórn forseta.