143. löggjafarþing — 58. fundur,  28. jan. 2014.

ummæli þingmanns í umræðum um störf þingsins.

[14:13]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Hv. þm. Bjarkey Gunnarsdóttir byrjar á því að lýsa sig efnislega sammála ræðu hv. þm. Helga Hjörvars sem beindi orðum sínum til hv. þm. Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, hv. þm. Unnar Brár Konráðsdóttur og hv. þm. Sigrúnar Magnúsdóttur og kemur svo og segir að sá sem hér stendur megi ekki ræða það sem er hér undir liðnum um störf þingsins. (Gripið fram í.)

Ég verð, virðulegi forseti, að fá leiðbeiningar um það hvernig maður má haga sér undir þessum lið því að þetta er að verða ansi flókið. Í sömu ræðunni vísar hv. þingmaður til þess að það sé algjörlega til fyrirmyndar hvernig hv. þm. Helgi Hjörvar talar (BjG: Píratarnir …) við þá þrjá hv. þingmenn sem ég nefndi. Það á augljóslega ekki við um alla, þetta á kannski bara við um stjórnarandstöðuna. (BjG: Þetta er útúrsnúningur.)