rannsóknir og saksókn í efnahagsbrotamálum.
Hæstv. forseti. Ég ætla að segja það hreinskilnislega að við fengum þessa yfirgripsmiklu skýrslu bara fyrir skömmu. Ég hef því ekki lesið hvert einasta orð í henni enda kemur fram hjá hæstv. ráðherra að við munum fá tækifæri til að fjalla um málið í allsherjar- og menntamálanefnd og ég tel gríðarlega mikilvægt að tekinn verði góður tími í þetta.
Ástæða er til að vekja athygli á því að þessi skýrsla verður til vegna þess að sett voru lög árið 2011 með svohljóðandi bráðabirgðaákvæði, með leyfi forseta:
„Innanríkisráðherra skal skipa nefnd sérfróðra manna að höfðu samráði við hlutaðeigandi ráðuneyti til þess að endurskoða skipulag og tilhögun rannsókna og saksóknar í efnahagsbrotamálum og gera tillögur að heildarskipulagi slíkra rannsókna innan einnar stofnunar í þeim tilgangi að gera þær skilvirkari og markvissari og tryggja sem besta nýtingu fjármuna sem ætlaðir eru í þessu skyni.“
Í þessum tilgangi var skipaður hópur og var meðal annars skoðað að stofna nýja efnahagsbrotastofnun, að sameina stofnanir eða styrkja löggjöfina. Ég held að fyrir fram sé hægt að setja fram þá meginskoðun — hafandi farið í gegnum hrunið sem varð árið 2008, alla þá umræðu sem varð árin þar á undan, sem snerist um að ekki mætti setja nein lög um fjármálalega gjörninga; við ætluðum að keppast við að verða það land í heiminum sem hefði hvað frjálsastar reglur um fjármálamarkaðina — að öllum hafi orðið ljóst að umgjörðin um þennan málaflokk skiptir gríðarlega miklu máli. Það skiptir máli að lagaumhverfið sé skýrt — hvað má, hvað má ekki — að þannig sé búið um hnútana að þegar efnahagsbrot og skattalagabrot og önnur slík brot koma upp sé rannsóknin viðunandi og dómstólar og kerfið í heild hafi burði til að takast á við málin. Oft og tíðum, við höfum séð það hjá sérstökum saksóknara, er verið að glíma við gríðarlega mikið fjármagn og öflugan hóp verjenda, þess vegna þarf lagaumhverfið að vera mjög gott og skýrt til þess að þetta gangi.
Í þessari skýrslu eru lagðar fram tvær megintillögur. Annars vegar er verið að tala um að vera með nýja rannsókna- og ákærustofnun til að taka við verkefnum embættis sérstaks saksóknara og eftir sem áður að peningaþvættisskrifstofa frá ríkislögreglustjóra færist til þessarar nýju stofnunar. Í hinu tilfellinu er til viðbótar búið að taka skattrannsóknarstjóraembættið og færa það inn undir sömu stofnun.
Ég held að óhætt sé að fullyrða að þetta eru hugmyndir sem þurfa mikla umræðu hér, hvernig þessu verður best fyrir komið. Ég sé það á stuttri yfirferð yfir skýrsluna að þar eru málin reifuð mjög vel. Til dæmis er athyglisvert að lesa upplýsingar um fjölda mála sem hafa verið að koma upp, meðal annars hjá sérstökum saksóknara, og líka þá gríðarlegu upphæð sem er í þessum málaflokki sem eru, að mér sýnist, á síðasta ári um 1.770 millj. kr., sem eru auðvitað umtalsverðir peningar. Þannig að það skiptir máli að þetta mál sé rætt.
Ég fagna því að hæstv. ráðherra ákveði að málið fari til allsherjar- og menntamálanefndar og fái þar umfjöllun, kalli eftir því að við reynum að leita að samstöðu um málið og reynum að búa þannig um hnúta að ekki sé verið að togast á um stofnanastrúktúr eða málsmeðferðir, heldur að við getum sameinast um að búa til þannig lagaumhverfi að vel sé að málum staðið.
Þetta er mjög stórt verkefni að fara yfir. Ég treysti á að hæstv. ráðherra meini það af heilindum, sem ég veit að hún gerir, þ.e. að málið fái ítarlega skoðun, fái umfjöllun, að við fáum að greina þá pappíra sem hér eru á bak við og heyra frá þeim aðilum sem hafa komið að málum. Þannig fáum við vandaða niðurstöðu sem verður til þess að við getum búið hér eðlilegt fjármálaumhverfi hvað varðar alla vega efnahagsbrot.
Það hefur lengi verið viðhorf á Íslandi, því miður, að maður eigi að reyna að leyfa sér allt sem hægt er að komast upp með og menn finna nánast alltaf einhverja fleti á því að reyna að komast hjá lögum. Þetta hefur nú gengið svo langt að hér hafa einstakir þingmenn, ef við lítum nokkur ár aftur í tímann, staðið og sagt að auðvitað reyni menn að brjóta lögin sem er algjörlega kolrangt viðhorf. Við eigum auðvitað sem þingheimur og sem samfélag að fordæma brot, skattalagabrot eða hagnaðarbrot eða sviksemi hvers konar, við öll þau tækifæri sem við fáum, vegna þess að þannig getum við tryggt að þetta samfélag verði rekið af sanngirni og undir þeim reglum þar sem allir taka þátt en ekki aðeins ákveðnir hópar.
Takk fyrir þetta mál. Það verður spennandi að fá að fylgja því eftir í hv. allsherjar- og menntamálanefnd.