143. löggjafarþing — 58. fundur,  28. jan. 2014.

lagaskrifstofa Alþingis.

271. mál
[17:39]
Horfa

Flm. (Vigdís Hauksdóttir) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka kærlega fyrir það að þingmanninum lítist svona vel á þetta mál, hann skilur þörfina á lagaskrifstofu Alþingis eins og ég. Inn við beinið trúi ég því að þingmenn allir skilji þörfina á lagaskrifstofu Alþingis.

Hv. þm. Jón Þór Ólafsson spyr jafnframt hvort mér sé alvara með að leggja frumvarpið fram. Að sjálfsögðu er mér mikil alvara með það og hef talað fyrir bættri lagasetningu síðan ég settist á þing og hef kannski verið einn sá þingmaður sem haldið hefur uppi lagatæknilega hlutanum í öllum málum síðustu fjögur árin, við náttúrlega lítinn fögnuð þáverandi meiri hluta, eins og til dæmis í baráttu fyrir breyttri stjórnarskrá o.s.frv. Hef sífellt verið að minna á að hitt og þetta lagaákvæðið í hinum og þessum lögum brjóti gegn stjórnarskrá.

Ég hef ekki tryggt frumvarpinu neinn forgang í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd enda væri það mjög óeðlilegt inngrip af minni hálfu vegna þess að nefndirnar hafa ákveðið hlutverk í þinginu. Og þrátt fyrir að hv. þm. Ögmundur Jónasson fari fyrir þeirri nefnd hef ég fulla trú á þingmanninum því að hann hefur jú verið innanríkisráðherra og þar eru dómstólarnir og lagasetningin einmitt á borði þess ráðuneytis. Ég tel því að hv. þm. Ögmundur Jónasson hafi fullan skilning á þessu máli svo að ég tali nú ekki um varaformann nefndarinnar, hv. þm. Brynjar Níelsson, sem er hæstaréttarlögmaður og hefur fengist við ýmis mál fyrir dómstólum meðal annars vegna slakrar lagasetningar.

Þingmaðurinn spyr jafnframt hvers vegna lagt er til að þessir aðilar verði skipaðir á þessa lagaskrifstofu. Hafi þingmaðurinn athugasemdir við nákvæmlega það sem stendur í frumvarpinu þá er svigrúmið akkúrat í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd (Forseti hringir.) að leggja til breytingar á því.