143. löggjafarþing — 59. fundur,  29. jan. 2014.

gjald af makrílveiðum.

[15:05]
Horfa

forsætisráðherra (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (F):

Virðulegur forseti. Hv. þingmaður hefur áður spurt mig nánast sömu spurningar og ég vísa til fyrra svars nema hvað varðar viðbótina, spurninguna um hvenær megi vænta þess að stofnuð verði sú nefnd sem mun skoða þetta mál áfram. Það er stutt í að sjávarútvegsráðherra komi með frumvarp um stofnun þeirrar nefndar meðal annars og hefði raunar verið mjög einfalt fyrir hv. þingmann að spyrja sjávarútvegsráðherra beint því að hann situr hér fyrir svörum.

Að öðru leyti vísa ég til fyrra svars við spurningu hv. þingmanns.