orka frá Blönduvirkjun.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra Ragnheiði E. Árnadóttur kærlega fyrir svörin og ég treysti sannarlega á að þetta verði að veruleika þar sem ráðherrann upplýsti að hún hefjist strax handa með samstarfsvettvang með heimamönnum. Mér finnst við ekki geta beðið vegna þess að ég held að það sé ekkert langt í að Húnavatnssýslur falli niður í skilgreininguna „brothætt byggð“. Ég vil ekki að það gangi svo langt og við eigum að bregðast við vandanum áður en hann er orðinn að veruleika.
Ég er ekki alveg sammála hæstv. ráðherra um að þetta sé misskilningur hjá mér með Blöndulínu 3. Ég veit alveg hver tilgangur hennar er, að styrkja byggðalínuna. Ég hef rök fyrir því að vilja ekki gera það. Mér finnst að umframorka þarna geti þá alveg eins nýst á suðurleiðinni þar sem línur eru fyrir. Ég vil að Blönduvirkjun nýtist sem allra best á þessu svæði Húnavatnssýslna og að þar verði byggð upp atvinna.