kosning níu manna og jafnmargra varamanna í stjórn Ríkisútvarpsins, fjölmiðils í almannaþágu, að viðhafðri hlutfallskosningu, skv. 9. gr. laga nr. 23/2013 um Ríkisútvarpið, fjölmiðil í almannaþágu.
Virðulegi forseti. Ekkert af rökstuðningi meiri hlutans stenst skoðun. Ekki ein röksemd. Oft hef ég staðið hér og rökrætt og það hafa komið einstaka rök með og önnur á móti. Ekki ein einasta röksemdafærsla frá meiri hlutanum stenst skoðun; ekki tilurð þessa ákvæðis, ekki tilgangurinn með því, ekki hvað þetta sé lýðræðislegt, ekki hvað þetta sé gegnsætt. Það sem gerðist var það að meiri hlutinn gat ekki rökstutt þá breytingu sína að fjarlægja áheyrnarfulltrúa starfsmanna RÚV og þá fylltu þeir upp í vegna þess að nú var komið aukið gegnsæi, sem var væntanlega mjög slæmt, þeir brugðust við með því að auka tangarhald sitt.
Ég er svolítið fyrir staðreyndir. Það er staðreynd að 66,7% er hærri tala en 57,1% eða 55,5%. Báðar tölurnar eru í boði. Ef þetta eru fimm menn af níu gerir það 55,5%, sem er nær þjóðarviljanum mætti bæta við. Svo getum við líka bara sleppt fulltrúa okkar pírata og haft þetta lýðræðislegra ef það er málið (Forseti hringir.) og haft þetta fjóra af sjö, eða 57,1% sem endurspeglar vilja þjóðarinnar talsvert betur en þessi fáránlega tillaga. (Forseti hringir.) (Gripið fram í: Heyr, heyr.)