kosning níu manna og jafnmargra varamanna í stjórn Ríkisútvarpsins, fjölmiðils í almannaþágu, að viðhafðri hlutfallskosningu, skv. 9. gr. laga nr. 23/2013 um Ríkisútvarpið, fjölmiðil í almannaþágu.
Virðulegur forseti. Hefur herra forseti tekið eftir því að í hvert sinn sem hv. þm. Helgi Hjörvar er staðinn að því að fara með rangt mál byrjar hann að æpa? [Háreysti í þingsal.] (KaJúl: Talaðu um málið.) Þó að hann æpi hér úr ræðustól … (ÁPÁ: Talaðu einu sinni um málefnið, einu sinni um málefnið. …) (Forseti hringir.)
(Forseti (KLM): Ég bið þingmenn sem sitja úti í sal að gefa ræðumanni tækifæri til að flytja ræðu sína.)
Þakka þér fyrir. Þótt hv. þingmaður æpi hér úr ræðustól er það enn þá rangt sem hann hélt fram; hann fór með ósannindi. Ég kom ekki að þessu máli á nokkurn þann hátt sem hv. þingmaður lýsti, auk þess sem gerð hefur verið grein fyrir því hér á mjög skýran hátt að ekkert samkomulag hafi verið í gildi. En hvað um það.
Nú er sá tími liðinn. Nú erum við að kjósa hér í níu manna stjórn. (KaJúl: Það var sagt í þingsal …) Það er eðlilegt að við þær aðstæður kjósi þingmenn þá fulltrúa sem þeir vilja. Þeir kjósa bara sína fulltrúa, þá fulltrúa sem þeir telja best til þess hæfa. Menn virðast telja að eitthvað annað eigi við um þann fulltrúa sem píratar kusu síðast. Þá hvet ég samfylkingarmenn ekki hvað síst til þess að vera ekki að kjósa sinn fulltrúa, sem er greinilega eitthvað svo óviðeigandi, (ÁPÁ : Þetta er listakosning.) (KaJúl: Þetta er listakosning.)[Háreysti í þingsal.] heldur kjósa bara fulltrúa Pírata. (BirgJ: Skilurðu ekki hvernig þetta gengur fyrir sig?) (Forseti hringir.) Jú, jú það er hægt að raða upp listanum þannig að fulltrúi Pírata verði öruggur inn, (ÁPÁ: Það er persónukosning. …)þá þurfa menn ekki lengur að hafa svona miklar áhyggjur af þeim fulltrúa. (Forseti hringir.) Þar með er málið [Háreysti í þingsal.] leyst, virðulegur forseti. (ÁPÁ: Tökum forsætisráðherra á orðinu. Forsætisráðherra er að gera breytingartillögu hér.) (KaJúl: Þetta var ekki forsætisráðherralegt.) (BirgJ: Nei …)