143. löggjafarþing — 60. fundur,  10. feb. 2014.

framlagning stjórnarfrumvarpa.

[15:14]
Horfa

Róbert Marshall (Bf):

Virðulegur forseti. Því miður er það svo að þegar maður horfir yfir þau mál sem hafa verið í umræðunni á yfirstandandi vetri, hvort sem það er kynjakvóti í stjórnir fyrirtækja, græna hagkerfið eða fjárfestingaráætlun fyrri ríkisstjórnar, rammaáætlun eða náttúruvernd, fiskveiðistjórnin, Evrópusambandið eða stjórnarskráin, þá hefur umræðan meira og minna snúist um það að spóla til baka. Þeir sem nota makka þekkja hugtakið „slaufa z“, þeir sem nota PC þekkja undo-takkann, og virðuleg ríkisstjórn virðist vera föst í því að spóla til baka og vera eingöngu að fást við að koma málum í það horf sem þau voru fyrir og áður en síðasta ríkisstjórn tók við. Ég er ekki viss um að það sé uppbyggilegt. Ég held að það væri uppbyggilegra að fá raunverulegar hugmyndir frá hæstv. ríkisstjórn sem við gætum tekið til umfjöllunar tímanlega hér í þinginu þannig að virkilega yrði vandað til verka. Ég hvet hæstv. forsætisráðherra til að rifja upp ræður sínar um verkstjórn fyrrverandi forsætisráðherra hér í þinginu.