143. löggjafarþing — 60. fundur,  10. feb. 2014.

hönnunarstefna stjórnvalda.

[15:21]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Hún talaði um sátt. Það var sátt um hönnunarstefnuna, held ég megi segja, en ekki um fjármögnunina eða öllu heldur þær fáu krónur sem fengust, þær 25 millj. kr. sem hér voru nefndar. Eins og áður hefur verið komið inn á var allt skorið niður sem flokkaðist undir stefnu fyrri ríkisstjórnar, fjárfestingaráætlunina, og þetta var meðal annars þar undir, þarna vildum við gefa vel í.

Falleg orð og pólitískar yfirlýsingar duga skammt því að við þurftum að taka slaginn fyrir hverja krónu eins og ég segi. Þetta á að vera drifkraftur aukinnar verðmætasköpunar segir í stefnunni. Því langar mig að spyrja aftur: Á að veita fjármuni úr Tækniþróunarsjóði að einhverju leyti í þessi mál? Hvernig á að fjármagna hönnunarsjóð til framtíðar að mati ráðherrans og hvað telur hún eðlilegt að sjóðurinn hafi umleikis á hverju ári?