143. löggjafarþing — 60. fundur,  10. feb. 2014.

viðvera ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma.

[15:42]
Horfa

Birgir Ármannsson (S):

Hæstv. forseti. Ég ætlaði að koma því á framfæri sem hæstv. iðnaðarráðherra gerði hér áðan að ráðherra er forfallaður vegna ferðar út á land eins og gerist í slíkum embættum. Eins og rakið hefur verið ítarlega þá eru ekki fá fordæmi fyrir slíku og jafnvel að breytingar verði á viðveru í óundirbúnum fyrirspurnum af þeim sökum.

Hins vegar ætlaði ég að biðja hv. þingmenn stjórnarandstöðunnar að slaka aðeins á í þessu máli. Nú er málið í þeim farvegi að ríkissaksóknari er að kanna það, hefur eftir atvikum vísað einhverjum þáttum eða einhverjum athugunum til lögreglu. Það er enginn sem getur haldið því fram að hæstv. innanríkisráðherra liggi undir grun um eitt eða neitt í þessu sambandi og þess vegna er tal af hálfu hv. stjórnarandstöðu, bæði hér í þinginu en reyndar ekki síður í fjölmiðlum, algerlega út í hött; að ráðherra eigi að segja af sér af þessum sökum er fullkomið lýðskrum.