143. löggjafarþing — 60. fundur,  10. feb. 2014.

viðvera ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma.

[15:45]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Forseti greindi reyndar frá því hér í upphafi strax þegar þessi umræða hófst að hæstv. innanríkisráðherra yrði hér viðstödd á fimmtudaginn kemur í þessum umræðum undir dagskrárliðnum óundirbúnar fyrirspurnir. Síðan hefur það komið fram að hæstv. ráðherra er fjarverandi vegna annarra skyldustarfa sinna í dag.