143. löggjafarþing — 61. fundur,  11. feb. 2014.

störf þingsins.

[13:31]
Horfa

Ásmundur Friðriksson (S):

Virðulegi forseti. Það er átakanlegt þegar maður veltir fyrir sér kjörum ýmissa hópa í þjóðfélaginu, til dæmis öryrkja, eldri borgara og annarra einstaklinga og fjölskyldna sem lifa á bótum og eru á framfærslu opinberra aðila. Ég hef velt því mikið fyrir mér undanfarna daga hvernig við getum bætt kjör þeirra, eins og þið öll hafið örugglega gert líka. Ljóst er að þau verða ekki bætt nema við aukum verðmætasköpun í landinu. Við verðum að fjölga atvinnutækifærum þar sem borguð eru betri laun. Við þurfum að framleiða meira til að skapa verðmæti og gjaldeyri til að greiða niður skuldir okkar og til að geta staðið undir frekari velferð í landinu. Það höfum við svolítið í hendi okkar en mér finnst okkur ekki takast mjög vel upp við það að koma því í gang.

Hér bíða stór atvinnutækifæri þess að komast í gang. Það er undir okkur komið að bæta kjör þeirra hópa sem ég minntist á í upphafi, öryrkja, eldri borgara og fólks á bótum. Það er í okkar höndum að koma þeim atvinnutækifærum í gang. Mér finnst það mikilvægt verkefni að stefna á það á þessu ári að eitthvað af þeim stóru verkefnum sem bíða þess að komast í gang, t.d. álver í Helguvík og virkjanir í neðri hluta Þjórsár, séu verkefni sem geta skapað gjaldeyri og tekjur til að mæta samborgurum okkar sem við þurfum helst og best að líta eftir. Það finnst mér vera verkefni okkar í þessum sal og ég trúi því og treysti að við viljum öll taka þátt í því. Til þess þurfum við að skapa verðmæti í þjóðfélaginu, það gerist ekki öðruvísi en með því að koma stórum framleiðslutækifærum í gang og auka kvótann strax.