143. löggjafarþing — 61. fundur,  11. feb. 2014.

störf þingsins.

[13:51]
Horfa

Mörður Árnason (Sf):

Forseti. Ég vek athygli þingheims og sérstaklega þeirra hv. þingmanna sem sitja í hinni háu stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd á svari ráðherra matvælamála við fyrirspurn frá mér um svokallaðan hvalabjór og það hvalamjöl sem í hann er tilreitt.

Hvalabjórsmálið væri nú ekki annað en hryssingslegur brandari á þorranum ef ekki væri það sem fram kemur í svarinu, að starfsleyfi til að framleiða hvalamjöl til manneldis hefur fyrirtækið Hvalur hf., sem hér kemur við sögu, ekki. Það hefur heldur ekki starfsleyfi til að framleiða krydd ef menn vilja telja að hvalamjölið í bjórnum, sem hver hefur sinn smekk á, sé af því taginu.

Það kemur í ljós á milli lína í svarinu en einkum í fylgiskjölum svarsins, í umsögnum Matvælastofnunar og Heilbrigðiseftirlits Vesturlands, að ráðherrann hafði engin rök og enga ástæðu til að rifta þeirri ákvörðun sem Heilbrigðiseftirlit Vesturlands hafði tekið um dreifingu þessarar vöru, enga.

Ráðherrann færist að vísu undan að svara þeim lögfræðispurningum sem honum er gert að svara í fyrirspurninni vegna þess að þær komi fram í úrskurðinum. En úrskurðurinn fellur auðvitað ekki fyrr en þorranum er lokið og þar með þeim sölutíma sem bjórnum var settur.

Hér virðist vera, þannig að vægilega sé tekið til orða, um að ræða geðþóttastjórnsýslu, ákvarðanir sem ráðherra, sem nýtur trausts og stuðnings á þessu þingi eða gerði það, tekur án þess að hafa ástæðu til, án þess að geta varið. Ég fer fram á það að þingmenn í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd taki þetta mál upp (Forseti hringir.) þegar úrskurðurinn hefur fallið sem ég efast ekki um hvernig verður því að engin rök standa til annars en að hann verði ráðherranum í óhag.