143. löggjafarþing — 61. fundur,  11. feb. 2014.

störf þingsins.

[13:57]
Horfa

Haraldur Einarsson (F):

Hæstv. forseti. Ég vil nota tækifærið og taka undir með hv. þm. Fjólu Hrund Björnsdóttur sem sagði í jómfrúrræðu sinni áðan að leyfa ætti hægri beygjur á rauðu ljósi. Ég hef velt þessu fyrir mér í talsverðan tíma og komist að sömu niðurstöðu og hv. þingmaður. Efasemdaraddir geta að sjálfsögðu vaknað og eru skiljanlegar. Dæmi um lönd sem leyfa hægri beygju á umferðarljósum eru Kína, Pólland og Þýskaland og í fleiri löndum eins og Bretlandi, Japan og Indlandi þar sem vinstri umferð, öfugt við okkar umferðarkerfi, er frjálst að taka vinstri beygjur á umferðarljósum. Í öllum þessum löndum er mun meiri umferðarþungi en nokkurn tímann getur verið á Íslandi.

Skoðum eitt dæmi, ljósin á umferðarþyngstu gatnamótum landsins þar sem Miklabraut og Kringlumýrarbraut skerast. Þar er í raun leyfð hægri beygja þar sem er frárein fram hjá ljósunum og biðskylda fyrir umferð úr þverstæðri átt, en það gerir nákvæmlega það sama ef hægri beygja væri leyfð á ljósunum.