vernd og nýting ferðamannastaða.
Virðulegi forseti. Fæst af því sem kemur fram í þessari umræðu er nýtt af nálinni. Við höfum rætt það margoft undanfarin ár hvernig við getum innleitt náttúrupassa. Það var gerð atlaga að því og það var ekki í fyrsta skipti. Umræða hefur verið í nefndum í fjármálaráðuneytinu og iðnaðarráðuneytinu frá því um síðustu aldamót um hvernig það gæti verið gert. Niðurstaðan á síðasta kjörtímabili varð sú að koma inn með frumvarp um gjaldtöku, sem endaði í hinu pínulitla gistináttagjaldi eftir meðferð þingsins.
Vandinn er að finna hver það er sem á að innheimta gjaldið fyrir náttúrupassa. Aðilar í ferðaþjónustunni hafa ekki náð saman um hver það eigi að vera hingað til en það er mjög mikilvægt að þær greinar komi sér saman um það. Við höfum ekki náð þverpólitískri samstöðu um það í þinginu. Ég held að hæstv. ráðherra hafi verið í hópi þeirra sem studdu okkur ekki í því að hefja gjaldtöku á síðasta kjörtímabili með þeim hætti sem lagt var til í þinginu og það var ekki komið með neinar tillögur um hvernig væri þá hægt að gera það. Við höfum aldrei náð almennilega að taka umræðuna þverpólitískt og þverfaglega innan ferðaþjónustunnar. Það er mikilvægt að við náum að gera það. Ég er reiðubúin til að taka þátt í þeirri vinnu ef hæstv. ráðherra hefur séð að sér í þeim efnum, eins og mér heyrist hún hafa gert.
Virðulegi forseti. Varðandi framkvæmd markmiða sem hæstv. ráðherra nefnir eru það sömu markmið og við unnum með á síðasta kjörtímabili. Til þess að dreifa ferðamönnum betur um landið þarf Framkvæmdasjóður ferðamannastaða að vera öflugur. Þess vegna skil ég ekki hvers vegna þessi ríkisstjórn ákvað að gera það eitt af sínum fyrstu verkefnum að skera niður Framkvæmdasjóð ferðamannastaða. Það er sá sjóður sem á að byggja upp nýja ferðamannastaði, sem á að vernda náttúruna á þeim stöðum (Forseti hringir.) sem þegar eru fjölsóttir ferðamannastaðir. Svo skil ég ekki heldur hvers vegna menn ætla ekki að ljúka Dettifossvegi og hafa sett hann í biðstöðu.