vernd og nýting ferðamannastaða.
Forseti. Ég fagna þeim skilningi sem mér fannst koma fram í ræðu hæstv. ráðherra ferðamála að ferðamannaþjónustan sé að verða einn af helstu atvinnuvegum á Íslandi; sú atvinnugrein sem í raun og veru hélt okkur á floti í hruninu og sú atvinnugrein sem nú er að verða ein af burðarstoðum í íslensku atvinnulífi.
Undirstaða og grundvöllur ferðaþjónustunnar á Íslandi er náttúran. Þess vegna er auðvitað rétt að fara yfir það hver afstaða ríkisstjórnarinnar sem nú situr er til náttúrunnar. Hvað hefur ríkisstjórnin gert til að fremja ferðaþjónustuna og til að varðveita náttúruna þannig að við getum sýnt hana og haft af henni fé fyrir utan það gildi sem hún hefur í sjálfu sér?
Hér er minnst á Framkvæmdasjóð ferðamannastaða sem var skorinn niður og er í raun og veru fjársveltur. Því hefur líka verið lýst hvernig ríkisstjórnin núna treystir sér ekki til að auka gjaldtöku af ferðamönnum til að veita til náttúruverndar með gistináttagjaldinu. Það er athyglisvert að friðlýsingar í Umhverfisstofnun liggja niðri. Sex starfsmönnum var sagt upp vegna þess að fjárveiting til aukinna friðlýsinga í Umhverfisstofnun var skorin af. Það er líka athyglisvert að síðan ríkisstjórnin tók við hefur landvörðum fækkað um 40%; 40% færri landverðir til að vernda náttúruna og líta eftir henni. Það er auðvitað skrýtið að þurfa að lesa um það í New York Times að ríkisstjórnin sé með totustefnunni í Þjórsárverum að hrekja ferðamenn frá komu til landsins og það er auðvitað allra skrýtnast að ríkisstjórnin skuli vera að taka af þau náttúruverndarlög sem okkur tókst að samþykkja hér í fyrra. Þessu þarf ráðherra ferðamála að svara ef hún ætlar að svara hér einhverju, hún getur það ekki, en ekki því að hún sé með eitthvað í nefndum um náttúrupassann.