143. löggjafarþing — 61. fundur,  11. feb. 2014.

kaup ríkisins á Grímsstöðum á Fjöllum.

276. mál
[17:49]
Horfa

Flm. (Ögmundur Jónasson) (Vg):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir tillögu til þingsályktunar sem ég flyt ásamt hv. þm. Svandísi Svavarsdóttur og er svohljóðandi, með leyfi forseta:

Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að leita eftir samningi um kaup á Grímsstöðum á Fjöllum og tryggja þannig að jörðin verði þjóðareign.

Hæstv. forseti. Fyrrverandi forseti Íslands, læknir og leigubílstjóri, verktaki, Megas og formaður Sambands ungra bænda sameinuðust í áskorun til Alþingis og ríkisstjórnar í heilsíðuauglýsingu sem birtist í dagblöðum í ágústlok árið 2012. Þarna voru margir fleiri, ungir og aldnir, konur og karlar, og alla vega á litinn í pólitík eins og straujað hefði verið yfir allan fyrri ágreining Morgunblaðsins, Þjóðviljans og Alþýðublaðsins því að þarna voru þeir allir, Styrmir, Helgi Már, Kjartan Ólafsson og Matthías, líka Björk, Guðrún Kristjánsdóttir myndlistarkona, Guðmundur sundkappi Gíslason og Ólafur Stefánsson handboltastjarna. Það sem þau áttu sameiginlegt var að skora á okkur sem sitjum á Alþingi að sjá til þess að Grímsstaðir á Fjöllum verði þjóðareign og landið þjóðarinnar allrar.

Í kjölfarið var flutt tillaga til þingsályktunar hér á þingi af hálfu þáverandi þingmanns, Guðfríðar Lilju Grétarsdóttur, um þetta sama efni og er tillagan sem við flytjum nú samhljóða. Við vitnum í okkar greinargerð til greinargerðar þess þingmáls en þar segir meðal annars, með leyfi forseta:

„Mikil umræða hefur spunnist í tengslum við áform erlendra auðmanna að festa kaup á Grímsstöðum á Fjöllum og öðru jarðnæði í landinu. Þetta varð meðal annars til þess að um 150 einstaklingar sendu frá sér svohljóðandi áskorun til Alþingis og ríkisstjórnarinnar undir yfirskriftinni „Grímsstaðir á Fjöllum verði þjóðareign“.“

Síðar segir, með leyfi forseta, í greinargerðinni:

„Margt mælir með því að ríkið festi kaup á Grímsstöðum á Fjöllum sem eru í þjóðlendujaðrinum. Ríkið á þegar tvær jarðir suður af Grímsstöðum, Víðidal og Möðrudal, og um fjórðung af Grímsstöðum á Fjöllum. Þá skal tekið undir það sem fram kemur í framangreindri áskorun að æskilegt sé að mótuð verði stefna varðandi eignarhald og umráð yfir óbyggðum og þá sérstaklega bújörðum sem teygja sig inn á hálendið. Þróunin í þessum efnum hefur verið mikið til umræðu að undanförnu og afhjúpað hversu brýnt er að móta stefnu til framtíðar og betrumbæta regluverkið í heild sinni hvað varðar eignarhald og umráðarétt yfir landi. Um ítarlegri umfjöllun og reifun á mikilvægi þess að endurskoða allt regluverk er snýr að eignarhaldi og umráðarétti yfir landi hérlendis og hversu áríðandi er að glata ekki óskoruðum yfirráðum yfir dýrmætum landsvæðum skal bent sérstaklega á greinargerð í 17. máli frá 141. löggjafarþingi.“

Áfram segir, með leyfi forseta:

„Þangað til þessi nauðsynlega heildarendurskoðun hefur farið fram verður að koma jörðum á borð við Grímsstaði á Fjöllum í skjól svo að tryggt sé að yfirráðin yfir landinu glatist ekki til frambúðar.“

Ég vil geta þess að lokinni þessari tilvitnun í greinargerð okkar með þingsályktunartillögunni að umrætt þingmál, 17. mál frá 141. þingi, er til umfjöllunar hér á eftir því að þingflokkur Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs stendur að flutningi þess.

Hæstv. forseti. Ég vísaði til auglýsingar sem kveður á um áskorun til Alþingis og ríkisstjórnar undir heitinu Grímsstaðir á Fjöllum verði þjóðareign og ég las upp texta þessarar áskorunar sem birtist í dagblöðunum í ágústlok árið 2012. Mig langar til að lesa upp nöfn þeirra sem rita undir þessa áskorun til Alþingis Íslendinga og eru þar með stuðningsmenn þess þingmáls sem við flytjum hér, ég og hv. þm. Svandís Svavarsdóttir, vegna þess að okkar þingmál er samhljóða áskoruninni sem eftirfarandi einstaklingar undirrituðu í ágústlok 2012:

Vigdís Finnbogadóttir, fyrrum forseti Íslands, Ólafur Stefánsson handknattleiksfyrirliði, Björk Guðmundsdóttir tónlistarkona, Helgi Haukur Hauksson, formaður Samtaka ungra bænda, Páll skúlason heimspekingur, fyrrverandi háskólarektor, Ómar Þ. Ragnarsson fréttamaður, Matthías Johannessen rithöfundur, Brynhildur Halldórsdóttir æðarræktandi, Syðra-Lóni, Langanesi, Guðrún Nordal, forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar, Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri, Jón Ólafsson, aðstoðarrektor Háskólans á Bifröst, Halldór G. Jónasson stýrimaður, Vopnafirði, Margrét Kristín Blöndal tónlistarkona, Jón Kalman Stefánsson rithöfundur, Gunnar Kristjánsson prófastur, Reynivöllum í Kjós, Steinþór Heiðarsson bóndi, Ytri-Tungu á Tjörnesi, Kristín Steinsdóttir rithöfundur, Þóra Ellen Þórhallsdóttir, prófessor í grasafræði við Háskóla Íslands, Helgi Valdimarsson læknir, Guðmundur Ingi Guðbrandsson framkvæmdastjóri, Ágúst Valfells verkfræðingur, fyrrverandi forstjóri Almannavarna, Bragi Benediktsson bóndi, Grímsstöðum á Fjöllum — ég endurtek, Bragi Benediktsson bóndi, Grímsstöðum á Fjöllum — Þorsteinn Bergsson, framkvæmdastjóri Minjaverndar, Pétur Gunnarsson rithöfundur, Elísabet Jónasdóttir, fyrrverandi bókavörður, Akureyri, Elín Agla Briem, meistaranemi í umhverfis- og auðlindafræði, Bjarni Benediktsson framkvæmdastjóri, Sigurbjörg Þorsteinsdóttir ónæmisfræðingur, Halla Guðmundsdóttir bóndi, Ásum, Stefán Jón Hafstein Reykjavík, Halldóra Þorsteinsdóttir sviðsstjóri, Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, prófessor HÍ og HA, Hjörleifur Stefánsson arkitekt, Hlín Svavarsdóttir dansari, Hafsteinn Hjartarson verktaki, Vilborg Dagbjartsdóttir, kennari og skáld, Guðrún Kristjánsdóttir myndlistarmaður, Bjarni E. Guðleifsson, prófessor emiritus, Möðruvöllum, Guðmundur Magnússon, formaður Öryrkjabandalags Íslands, Margrét Birna Andrésdóttir læknir, Agnar H. Gunnarsson, bóndi og oddviti, Miklabæ, Skagafirði, Helgi Helgason viðskiptastjóri, Ólöf Guðrún Helgadóttir snyrtifræðingur, Guðmundur Vilhjálmsson vélfræðingur, Húsavík, Melkorka Ólafsdóttir tónlistarkona, Lára Hanna Einarsdóttir þýðandi, Rúnar Þórarinsson bóndi, Sandfellshaga, Öxarfirði, Sigríður Stefánsdóttir réttarfélagsfræðingur, Kristín Jónsdóttir, náttúrufræðingur og kennari, Vopnafirði, Steinunn H. Blöndal ljósmóðir, Hreinn Friðfinnsson myndlistarmaður, Vigdís Grímsdóttir rithöfundur, Reimar Sigurjónsson bóndi, Felli, Finnafirði, Ólafur Ármann Sigurðsson skipstjóri, Eyvík, Tjörneshreppi, Jón Helgason, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra, Seglbúðum, Anna Ólafsdóttir Björnsson tölvunarfræðingur, Álftanesi, Margrét Helga Vilhjálmsdóttir húsmóðir, Þorleifur Gunnlaugsson varaborgarfulltrúi, Hulda Sigmarsdóttir frá Húsavík, nemi í arkitektúr, Svanhildur Kaaber kennari, Þórhallur Vilmundarson örnefnafræðingur, Anna M. Leósdóttir myndlistarmaður, Gunnsteinn Ólafsson tónlistarmaður, Baldur Jónasson, fyrrverandi markaðsstjóri, Viðar Gunngeirsson bóndi, Ásum, Oddný Eir Ævarsdóttir rithöfundur, Hjörleifur Guttormsson náttúrufræðingur, Margrét H. Blöndal myndlistarmaður, Megas tónlistarmaður, Óskar Árni Óskarsson rithöfundur, Friðrik Sigurðsson bóksali, Húsavík, Andri Snær Magnason rithöfundur, Kristín Jónsdóttir frá Munkaþverá, myndlistarmaður, Svanur Halldórsson leigubílstjóri, Kópavogi, Atli Vigfússon bóndi, Laxamýri, Suður-Þingeyjarsýslu, Þorgerður Þorvaldsdóttir þroskaþjálfi, Ósk Vilhjálmsdóttir myndlistarmaður, Elísabet Hjörleifsdóttir, hjúkrunarfræðingur og dósent, Valgarður Egilsson, læknir og rithöfundur, Hjalti Hugason, prófessor í kirkjusögu, Anna K. Kristjánsdóttir vélfræðingur, Ragnheiður Torfadóttir, fyrrverandi rektor MR, Kristinn Friðfinnsson sóknarprestur, Selfossi, Sigurður Pálsson rithöfundur, Eiður Svanberg Guðnason, fyrrverandi sendiherra, Sigurður Benediktsson tannlæknir, Eggert Pálsson tónlistarmaður, Hallfríður M. Pálsdóttir homópati, Bryndís Ísaksdóttir bókasafnsfræðingur, Vilhjálmur Geir Kristjánsson vélfræðingur, Akureyri, Sólveig Jónsdóttir aktívisti, Þórður Helgason dósent, Uggi Ævarsson fornleifafræðingur, Kristján Karlsson skáld, Ólafur G. Einarsson, fyrrverandi forseti Alþingis, Snorri Ingimarsson læknir, Guðmundur Gíslason, fyrrverandi aðstoðarbankastjóri, Ása Jóhannesdóttir leikskólakennari, Runólfur Guðmundsson skipstjóri, Grundarfirði, Ingvar Gíslason, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra, Dagbjört H. Óskarsdóttir snyrtifræðingur, Andrea Hjálmsdóttir félagsfræðingur, Akureyri, Trausti Aðalsteinsson bæjarfulltrúi, Norðurþingi, Húsavík, Guðrún Helgadóttir rithöfundur, fyrrum forseti Alþingis, Halldór Blöndal, fyrrverandi forseti Alþingis, Guðrún Agnarsdóttir, læknir og fyrrverandi alþingismaður, Sigrún Helgadóttir fræðibókahöfundur, Ólafur B. Andrésson skrifstofumaður, Kjartan Ólafsson, fyrrverandi ritstjóri, Jón Þórisson arkitekt, Sigfinnur Þorleifsson sjúkrahúsprestur, Pétur Jónasson, fyrrverandi borgarfulltrúi, Helgi Már Arthúrsson blaðamaður, Erlendur Sveinsson kvikmyndagerðarmaður, Gunnar Guttormsson vélfræðingur, Elín Margrét Hallgrímsdóttir símenntunarstjóri, Akureyri, Guðmundur H. Garðarsson, fyrrverandi alþingismaður, Pétur Örn Björnsson arkitekt, Gunnþór Ingason, sóknarprestur á sviði þjóðmenningar, Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur, Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Iceland Airwaves, Halla Ólafsdóttir háskólanemi, Ásdís Helgadóttir talmeinafræðingur, Ragnar Arnalds, fyrrverandi ráðherra, Ólöf Guðný Valdimarsdóttir arkitekt, Kjartan Örn Sigurbjörnsson sjúkrahúsprestur, Bjarnheiður Kristín Guðmundsdóttir örverufræðingur, Helga Margrét Ögmundsdóttir prófessor, Háskóla Íslands, Þórður Björn Sigurðsson, starfsmaður Hreyfingarinnar, Sigurður E. Guðmundsson, sagnfræðingur og fyrrum framkvæmdastjóri, Gísli Tryggvason lögfræðingur, Kópavogi, Jóhanna Aradóttir umsjónarmaður, Álftanesi, Svavar Gestsson, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra, Ingibjörg Jónasdóttir, fyrrverandi fræðslustjóri, Reykjavík, Guðrún Jónsdóttir arkitekt, Páll Pétursson, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra, Ólafur S. Andrésson prófessor, Háskóla Íslands, Björn Vigfússon menntaskólakennari, Akureyri, Egill Kolbeinsson tannlæknir, Hafnarfirði, Helgi Magnússon sagnfræðingur, Árni Gunnarsson, fyrrverandi alþingismaður, Guðrún Eggertsdóttir bókasafnsfræðingur, Védís Ólafsdóttir háskólanemi, Þorkell Máni Pétursson útvarpsmaður, Anna Lísa Björnsdóttir framkvæmdastjóri, Guðni Ágústsson, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra, Sigurður Örn Guðbjörnsson mannfræðingur, Valgerður Andrésdóttir erfðafræðingur, Áslaug Agnarsdóttir sviðsstjóri, Kári Arnórsson, fyrrverandi skólastjóri, Svanhildur Halldórsdóttir, Kópavogi, Þorsteinn frá Hamri, skáld, Katrín Fjeldsted læknir, Ævar Kjartansson útvarpsmaður, Ása Ketilsdóttir, Laugalandi við Ísafjarðardjúp, Páll Óskar Hjálmtýsson tónlistarmaður.

Hæstv. forseti. Mér fannst ástæða til að lesa upp nöfn þess fólks sem undirritaði áskorun til Alþingis Íslendinga um efni þess þingmáls sem við flytjum hér í dag, ég og hv. þm. Svandís Svavarsdóttir, áskorun til Alþingis og ríkisstjórnar um að Grímsstaðir á Fjöllum verði þjóðareign.