143. löggjafarþing — 62. fundur,  12. feb. 2014.

störf þingsins.

[15:12]
Horfa

Mörður Árnason (Sf):

Forseti. Ég hélt að með undantekningunni hæstv. innanríkisráðherra væri búið að segja á þessu stigi eiginlega allt sem hægt væri að segja um svokallað lekamál, en lengi er von á einum. Nú hefur málgagn Sjálfstæðisflokksins, Morgunblaðið, fjallað um lekamálið í leiðara á þann hátt að fram er komið nýtt sjónarmið. Ég hlýt að ætlast til þess og við hér, aðrir þingmenn, að fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í salnum og reyndar Framsóknarflokksins líka, því að Morgunblaðið hefur tekið að sér að vera málsvari þess flokks líka upp á síðkastið, lýsi því hvort þeir eru sammála eða ósammála þeim viðhorfum sem fram koma í leiðara Morgunblaðsins sem allir vita að skrifaður er með hendi fyrrverandi formanns flokksins, ritstjórans Davíðs Oddssonar.

Í leiðara blaðsins í dag kemur fram það athyglisverða sjónarmið að það sé í raun og veru ekkert að, ekkert hafi verið að þeirri stjórnsýslu sem birtist í hinu meinta lekamáli, það hafi verið rétt og sjálfsagt og sé réttur almennings að fá að vita um allar hugsanlegar ávirðingar, sannar eða ósannar, þeirra manna sem hæstv. innanríkisráðherra og ráðuneyti hans og stofnunum líst að hafna hér um hæli eða aðra hluti. Sú persónuhelgi sem ráðuneytinu ber að virða í þessu máli á líka við um önnur mál hjá ríki og sveitarfélögum, svo sem barnaverndarmál, þar sem stjórnvaldið er auðvitað í erfiðri stöðu að taka þátt í einhverri rökræðu utan þess veggja. „Ef umsækjendur eru vafasamir pappírar á ekki almenningur í landinu rétt á að upplýst sé um það?“ Þannig spyr ritstjórinn.

Ég spyr: Eru hv. þingmenn Sjálfstæðisflokksins sammála hinum gamla formanni sínum eða eru þeir ósammála honum? Hvort sem þeir eru er rétt að það komi fram hér og nú.