143. löggjafarþing — 62. fundur,  12. feb. 2014.

störf þingsins.

[15:14]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Undanfarið hefur verið rætt um könnun sem gerð var af Capacent fyrir Viðskiptaráð um innleiðingu skólagjalda í háskólum. Í könnuninni kemur fram að meiri hluti landsmanna sé hlynntur innleiðingu skólagjaldanna. Formaður hv. allsherjar- og menntamálanefndar segir í Fréttablaðinu í gær að ekki séu uppi áform um að breyta því viðmiði að allir eigi að hafa jafnan aðgang að námi og því eigi ekki að taka upp skólagjöld. Formaður Stúdentaráðs tekur í sama streng.

Ég fagna þeim viðbrögðum við niðurstöðum könnunarinnar.

Ólafur Þ. Stephensen, ritstjóri Fréttablaðsins, gerir könnunina að umtalsefni í Fréttablaðinu í dag og segir þar meðal annars að niðurstaðan þurfi ekki að koma á óvart í ljósi þess að hér á landi sé góð reynsla af einkareknum háskólum sem innheimta skólagjöld, lánasjóðurinn láni fyrir skólagjöldunum og sumir greiði námslánin aldrei að fullu til baka.

Ég vil, virðulegi forseti, staldra við þessi sjónarmið og hvetja til umræðu um það hvort í raun sé rétt og æskilegt að nemendur greiði umtalsverð skólagjöld til skóla sem reknir eru fyrir almannafé eins og á við um einkaskóla hér á landi og að þeir fái auk þess ríkisstyrk til að greiða þau gjöld. Væri ekki eðlilegra að einkareknu skólarnir fengju fé úr ríkissjóði til rekstrar en í staðinn rukkuðu þeir ekki nemendur um skólagjöld? Eða þá að setja þak á þá upphæð sem rukka má nemendur um til viðbótar ríkisframlaginu eins og hefur verið gert til dæmis í Svíþjóð.

Sú samkeppni sem varð til hér á landi með tilkomu fleiri háskóla hefur án efa skilað sér í bættu námi og metnaðarfyllra skólastarfi í heildina tekið, en aldeilis er óvíst og að mínu mati afar ólíklegt að öruggt sé að nemendur sem greiða fyrir hluta af rekstrarkostnaði skólanna í formi skólagjalda fái í staðinn betri menntun.