143. löggjafarþing — 62. fundur,  12. feb. 2014.

heilbrigðisþjónusta og sjúklingagjöld.

[15:38]
Horfa

Ögmundur Jónasson (Vg):

Hæstv. forseti. Á undanförnum mánuðum hafa verið birtar tvær skýrslur, annars vegar af hálfu Krabbameinsfélags Íslands og hins vegar Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands, sem báðar sýna fram á að kostnaðarhlutdeild sjúklinga hefur farið stöðugt vaxandi á undanförnum árum og áratugum.

Fyrri skýrslan sem kom í dagsljósið var skýrsla sem Ingimar Einarsson, sérfræðingur á sviði heilbrigðismála, vann fyrir Krabbameinsfélag Íslands eins og áður er getið. Þar kom fram að 20%, fimmtungur, af heildarkostnaði við rekstur heilbrigðiskerfisins á síðasta ári hafi komið úr vasa sjúklinga, hlutfallið hafi hækkað jafnt og þétt um nokkuð langt skeið. Ingimar segir í skýrslu sinni að ljóst sé að efnahagur sjúklinga muni að óbreyttu ráða æ meiru um sjúkdómsmeðferð ef ekki verði snúið af þessari óheillabraut.

Fram kemur í skýrslu Ingimars Einarssonar að greiðsluþátttaka sjúklinga sé mun meiri hér á landi en í nágrannalöndunum og hafi tvöfaldast á síðustu 30 árum. 20% greiðsluhlutfall sé afar hátt og er staðhæft í skýrslunni að það sé svo hátt, þ.e. skýrsluhöfundur kemst að þeirri niðurstöðu, að þjóð sem vilji kenna sig við velferð geti ekki sætt sig við slík hlutföll.

Þegar skýrsla Ingimars var birt á sínum tíma var talsverð umfjöllun um þessi efni í fjölmiðlum, þar á meðal í Ríkisútvarpinu. Þar var viðtal við hjón sem áttu við veikindi að stríða, karlmann sem hafði gengið með erfið krabbamein í tæpt ár og reiknaðist til að hann hefði þurft að greiða vegna sjúkdómsins 830 þús. kr. á þessu eina ári. Það væri beinn kostnaður. Síðan væri spurning um óbeinan kostnað og ef hann væri reiknaður yrði þessi upphæð talsvert hærri.

Í skýrslu Ingimars Einarssonar kemur einnig fram að fjöldi þeirra sem fresta því að leita læknis vegna kostnaðar hafi aukist um 50% frá 2006 og hann hnykkir á hve alvarlegt það sé.

Hin skýrslan var unnin á vegum Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands að undirlagi Rúnars Vilhjálmssonar, prófessors við félagsvísindadeildina. Í þeirri skýrslu kemur fram að þriðji hver Íslendingur hafi frestað nauðsynlegri læknisþjónustu á síðasta ári þrátt fyrir að telja sig þurfa á þjónustunni að halda og að þetta hlutfall hafi hækkað mikið á undanförnum árum. Birt eru línurit og upplýsingar og tölur um þetta efni. Það kemur fram að árið 1998 hafi hlutfall þeirra sem frestuðu því að fara til læknis hækkað mikið. 1998 var hlutfallið 24%, síðan fór það örlítið niður í þenslunni í aðdraganda hrunsins, niður í 22%, en í fyrra fór hlutfallið upp í 32%. Það sem er mjög alvarlegt er að samkvæmt könnuninni er hlutfallið hæst meðal öryrkja en tæpur helmingur þeirra neitaði sér um nauðsynlega þjónustu í fyrra.

Eins og fram kemur í máli mínu þá er þetta ekki nýtt af nálinni, þetta er langtímaþróun. Við í síðustu ríkisstjórn reyndum að koma í veg fyrir að kostnaðarhlutdeild sjúklinga ykist. Við stóðum mjög eindregið gegn því. Nú er spurt hvað núverandi heilbrigðisráðherra þyki um þessa þróun og hvort hann hyggist reyna að vinda ofan af henni og þá hvernig. Í kjölfarið langar mig til að spyrja hvernig (Forseti hringir.) sú umræða tengist vinnu sem unnin er á vegum (Forseti hringir.) heilbrigðisráðuneytisins undir forsæti (Forseti hringir.) þingmannsins Péturs H. Blöndals.