heilbrigðisþjónusta og sjúklingagjöld.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að vekja máls á þessu þarfa og brýna máli. Vissulega hef ég áhyggjur af aukinni kostnaðarþátttöku sjúklinga í íslenskri heilbrigðisþjónustu. Það er sem betur fer almenn sátt um það hvað telst til nauðsynlegrar heilbrigðisþjónustu, það er almenn sátt um það hvað fellur undir sjúkratryggingar og hver verkefni heilbrigðisstofnana ríkisins eru. Ég held að við getum öll verið sammála um að í ljósi þeirra aðhaldsaðgerða sem gripið hefur verið til í rekstri ríkissjóðs síðastliðin ár sé nokkuð ljóst að til skamms tíma sé tæpast hægt að ætlast til þess að nauðsynleg heilbrigðisþjónusta verði veitt á hagkvæmari hátt eða með minni tilkostnaði en gert er í dag. Ef við lítum á verkefnið sem hv. þingmaður dregur hér upp til umræðu þá er vandinn fyrst og fremst fjármögnunarvandi. Hann verður ekki leystur nema á tvennan hátt, annars vegar með framlögum úr ríkissjóði og hins vegar með þjónustugjöldum. Þetta er þjónusta sem heilbrigðiskerfið veitir og allir meta og við öll hér inni teljum mikla þörf fyrir. Það er eindregin ósk allra landsmanna að þetta kerfi sé til staðar og sömuleiðis eru landsmenn allir reiðubúnir að fórna miklu til að halda þessu kerfi gangandi.
Í mínum huga snýst þetta um að við þurfum að leita leiða í samvinnu stjórnvalda og veitenda þeirrar þjónustu sem við ætlum að halda uppi. Þetta snýr sömuleiðis að rannsóknum og innleiðingu á nýjungum í heilbrigðisþjónustunni, hvort tveggja á sviði tækni og ekki síður á sviði upplýsingagjafar. Enn fremur má nefna aðra þætti sem snúa að öðrum þáttum forvarna, breytinga á lífsstíl o.s.frv.
Það er rétt sem hv. þingmaður vitnar hér til að fyrir liggja tvær skýrslur, annars vegar frá Krabbameinsfélagi Íslands og hins vegar frá félagsvísindasviði Háskóla Íslands, sem sýna fram á að æ fleiri hverfa frá heilbrigðiskerfinu vegna kostnaðar. Ég átti þess kost að ræða við annan skýrsluhöfunda sem upplýsti að stærstur hluti hvarf frá vegna þess að hann komst ekki í viðhlítandi aðgerðir.
Ég vil líka vekja athygli á því sem hefur þó verið jákvætt að þessu leytinu og lýtur að kostnaði sjúklinga. Það var innleiðing á niðurgreiðslum sjúkratrygginga í tannlæknakostnaði barna. Ég held að það hafi verið af hinu góða og hafi áður haft í för með sér að fólk hvarf frekar frá því að sækja þá nauðsynlegu þjónustu.
Það er rétt sem hér er nefnt að við erum að fá dæmi um einstaklinga sem hafa lent í alveg óheyrilegum kostnaði vegna sjúkdóma sinna. Það er ekki af neinum illvilja í kerfinu heldur fullyrði ég að hluti af skýringunni er að við erum sennilega með á milli 30 og 40 greiðslukerfi fyrir sjúklinga í íslenskri heilbrigðisþjónustu í dag og það sér enginn í gegnum það. Það verður til kostnaður mjög víða í kerfinu og sums staðar erum við með þak sem sjúklingur getur lent í og vegna annarra afleiðinga sama sjúkdóms lendir hann í öðru greiðslukerfi sem leiðir hann aftur upp í eitthvert ákveðið þak og einstaklingar geta þannig lent í mörg hundruð þúsund kr. kostnaði. Þess vegna er afar brýnt að pólitísk samstaða náist um það meginverkefni íslenskra stjórnmálamanna á sviði heilbrigðismála að búa til eitt einfalt kerfi yfir alla þessa þætti. Það er vel hægt, en til þess þarf pólitíska samstöðu.
Það er alveg ljóst að við þetta verkefni þarf að hækka gjöld og auka kostnaðarþátttöku þeirra sem minnst sækja til kerfisins. Á sama tíma verða þeir að vera reiðubúnir að létta undir með þeim sem veikar standa og lækka kostnað þeirra. Sjúkdómar spyrja ekkert um félagslega stöðu. Það er almenn samstaða um það í þjóðfélaginu og hefur verið hingað til að verja þá sem verst standa. Það er algjörlega óásættanlegt annað en að stjórnmálaöflin á þinginu nái saman um það að búa til einfalt greiðsluþátttökukerfi sjúklinga. Það tengist þeirri vinnu sem hv. þingmaður spurði um, sem leidd hefur verið af hv. þm. Pétri H. Blöndal, þar sem við lítum á allt heilbrigðiskerfið út frá sjónarhorni einstaklingsins og tryggjum hann fyrir áföllum. (Forseti hringir.) Þetta verður að gerast og ég heiti á liðsinni þingmanna við það verkefni.