heilbrigðisþjónusta og sjúklingagjöld.
Virðulegi forseti. Hér er um mjög mikilvægt og nauðsynlegt mál að ræða en líka mjög viðkvæmt. Nú reynir á hv. þingmenn hvort þeir fari í popúlisma, tali gegn betri vitund eða tali um hlutina eins og þeir eru. (Gripið fram í.) Einhverra hluta vegna kallar hv. þm. Ögmundur Jónasson fram í þegar ég fer yfir þessa ræðu. Það er fullkomin tilviljun, (Gripið fram í.) hv. þm. Ögmundur Jónasson fer eiginlega á taugum hérna við það að ég fari yfir þessa ræðu. Hvers vegna skyldi það vera?
Hingað kom hv. þingmaður og sagði að fjölbreytt rekstrarform gengi gegn norræna velferðarmódelinu. Ég hvet hvern sem er sem hefur aðgang að tölvu og internetinu að kanna það hvort ekki sé einkarekstur í norrænu velferðarkerfunum. Það er nefnilega þannig, það er auðvitað einkarekstur þar alveg eins og hér og það hefur ekkert með kostnaðarþátttöku að gera. Það eru fullkomin ósannindi. (Gripið fram í: Píratar samþykktu …) Og fleiri VG-aðilar að fara á taugum.
Greiðslu fyrir komugjöld hækkuðu um 117 millj. kr. í tíð síðustu ríkisstjórnar, 117 millj. kr. á ári. Tölum um hvenær lægsta kostnaðarhlutdeildin var, hvenær var hún á undanförnum árum? Jú, það var í tíð Sjálfstæðisflokksins í heilbrigðisráðuneytinu. En það segir bara hálfa söguna. Aðalatriðið er: Hvað ætlum við að gera? Allir sem komið hafa að þessu máli vita, eins og hæstv. ráðherra fór í gegnum, að kostnaðarþátttakan er á hinum ýmsu stöðum. Ef við viljum í alvöru sjá til þess að þeir sem veikastir eru þurfi ekki að bera mikinn kostnað þá verðum við að vinna að því saman. Módelið er á Norðurlöndunum. Sú vinna er í gangi hjá hæstv. heilbrigðisráðherra, sem betur fer. Þar eru allir kallaðir til og ef menn vilja í alvöru byggja hér upp kerfi þar sem við þurfum ekki að lenda í því að þeir sem eru virkilega veikir, eru langveikir, (Forseti hringir.) þurfi að bera mikinn kostnað, þá skulum við vinna saman. Við skulum ekki koma hingað upp og (Forseti hringir.) reyna að slá einhverjar pólitískar keilur. (Forseti hringir.) Þetta mál er allt of stórt og of mikilvægt (Forseti hringir.) til að standa í slíku.