143. löggjafarþing — 62. fundur,  12. feb. 2014.

heilbrigðisþjónusta og sjúklingagjöld.

[16:03]
Horfa

Helgi Hjörvar (Sf):

Virðulegi forseti. Ég þakka málshefjanda fyrir að taka brýnt mál á dagskrá en bið hæstv. ráðherra um að gera nokkuð betur grein fyrir stefnu sinni í málinu. Í aðalatriðum á hann þrjá valkosti um að marka þá stefnu fyrir það kjörtímabil sem hann sem ráðherra hefur hafið; að auka eigi hlut sjúklinga í heilbrigðisgjöldum ellegar að stefna hans sé að halda hlut sjúklinga óbreyttum frá því sem verið hefur eða að minnka hann. Það væri gagnlegt fyrir umræðuna að hafa meginstefnu ráðherrans í málinu inni í umræðunni.

Ráðherra nefnir að eitt mikilvægasta verkefnið á þessu sviði sé að búa til eitt einfalt kerfi. Ég tek undir með ráðherra að einfalda má margt í kerfinu en ég vara við hugmyndum um að meðhöndla eigi allt eins. Ég leyfi mér að hafa efasemdir um það að ríkið eigi með sama hætti að taka þátt í kostnaði við lífshættulega sjúkdóma, mikilvæga heilbrigðisþjónustu og síðan þá þætti heilbrigðisþjónustunnar sem eru kannski fyrst og fremst til að auka lífsgæði okkar.

Ég held líka að ástæður séu fyrir því að sumt er haft ódýrt og sumt jafnvel ókeypis í kerfinu. Ég held að það geti verið sterk rök og margir hafa haldið því fram að það geti borgað sig að hafa heilsugæsluna ókeypis vegna þess að með því að taka á málum á fyrstu stigum spari menn svo mikinn kostnað á síðari stigum. Ég held að við getum efast um að það hafi verið rétt að leggja gjöld á sykursýkissjúklinga. Áður fyrr töldu menn væntanlega að kostnaðurinn við að fólk taki ekki lyfin sín í þeim tilfellum, þó ekki séu nema fáeinir einstaklingar, geti mjög auðveldlega orðið miklu meiri en tekjurnar af því að leggja gjöld á þá og þannig mætti áfram telja. Þess vegna hvet ég til þess að um leið og við einföldum kerfið höfum við efnislega og málefnalega umræðu um þá þætti sem samt eiga að vera með ólíkum hætti.