143. löggjafarþing — 62. fundur,  12. feb. 2014.

heilbrigðisþjónusta og sjúklingagjöld.

[16:05]
Horfa

Björt Ólafsdóttir (Bf):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka fyrir þessa þörfu umræðu og málshefjanda fyrir að benda á tvær ágætar skýrslur um aukna kostnaðarhlutdeild sjúklinga á Íslandi á undanförnum árum. Það er ekkert auðvelt að átta sig á stöðunni hjá þeim sem þurfa vegna veikinda sinna eða endurhæfingar að borga fyrir heilbrigðisþjónustu. Kerfin okkar eru flókin og það er erfitt að átta sig á því hvernig kostnaður fellur á fólk eftir mismunandi sjúkdómum og meðferðum. Þetta er þó víst allt til batnaðar og vonandi verður sú vinna sem hv. þm. Pétur H. Blöndal leiðir til þess að einfalda þetta. Sjúklingar heyja baráttu til heilsu og eiga ekki að þurfa að vera í lobbíisma um réttláta kostnaðarþátttöku ofan á það.

Hæstv. ráðherra sagði áðan að hjá okkur ríkti almenn sátt um hvað falli undir heilbrigðisþjónustu. Ég hnaut svolítið um það af því að ég held að því miður séum við ekki enn komin á þann stað sem við eigum þó auðvitað að stefna á. Það er að sjálfsögðu út af fjármögnunarvanda, eins og hæstv. ráðherra benti á. Í því sambandi vil ég taka geðheilbrigðismál sem nærtækt dæmi um heilbrigðisþjónustu sem þarf mun meira fjármagn og hefur átt það á hættu að vera einfaldlega ýtt út af borðinu þegar harðnar í ári eins og nú á við. Þetta virðist til dæmis vera að gerast á Akureyri þar sem gott og skilvirkt geðheilbrigðisteymi barna og unglinga hefur hálfpartinn verið klippt út úr sjúkrahúsþjónustunni vegna fjármögnunarvanda og kannski einhvers stjórnunarlegs vanda líka. Við eigum mikið verk fyrir höndum.