almenningssamgöngur.
Virðulegi forseti. Góðar almenningssamgöngur eru einn af mikilvægum hornsteinum sem vænleg búsetuskilyrði landsvæða eru byggð á. Í samgönguáætlun 2011–2022 segir, með leyfi forseta:
„Almenningssamgöngur milli þéttbýlisstaða og innan þéttbýlis verði efldar. Öflugar almenningssamgöngur eru greiðar og auka hreyfanleika og aðgengi. Við skipulag þeirra verði höfð hliðsjón af þjóðhagslegri hagkvæmni og stuðlað að umhverfislega sjálfbærri þróun. Landshlutasamtök sveitarfélaga taki yfir almenningssamgöngur á landi sem hingað til hafa verið ríkisstyrktar. Öll fjárframlög verði sameinuð vegna sérleyfa, einkaleyfa og skólaaksturs í hverjum landshluta. Þannig verði þjónusta færð að þörfum samfélagsins og almenningssamgöngur milli þéttbýlisstaða í hverjum landshluta efldar með grenndarstjórnsýslu og bættri nýtingu fjármagns.“
Í áætluninni er meðal annars rætt um í þessu samhengi öryggi í samgöngum, umhverfislega sjálfbærni og jákvæða byggðaþróun.
Samgönguáætluninni til stuðnings voru samþykktar breytingar árið 2011 á lögum um fólksflutninga og farmflutninga á landi. Þar segir meðal annars að Vegagerðin geti veitt sveitarfélögum, byggðasamlögum og landshlutasamtökum sveitarfélaga einkaleyfi til að skipuleggja og sjá um almenningssamgöngur með bifreiðum á tilteknu svæði og á tilteknum leiðum.
Sveitarfélögin tóku þessu verkefni fagnandi enda mikið hagsmunamál íbúa að bæta almenningssamgöngur og tengingar á milli sveitarfélaga. Samtök sveitarfélaga á Suðurnesjum hafa t.d. lagt mikla vinnu í þetta verkefni og skipulagt heildstætt samgöngukerfi á milli sveitarfélaganna og til höfuðborgarsvæðisins. Kerfið á að vera sjálfbært þannig að þær leiðir sem bera sig haldi samgöngum uppi á þeim leiðum sem gera það ekki.
Nú er það svo, virðulegi forseti, að staðan í almenningssamgöngum á Suðurnesjum í dag er í upplausn. Ástæðan er sú að hinn 19. desember afturkallaði Vegagerðin einkaleyfi Samtaka sveitarfélaga á Suðurnesjum á leiðinni á milli Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar og Reykjavíkur. Helstu rök Vegagerðarinnar eru þau að Samkeppniseftirlitið hafi komist að því að Vegagerðin hafi ekki gert nógu góðar athuganir á því hvort almenningssamgöngur á svæðinu þyrftu ríkisstyrk og að þjónustan eigi betur heima í frjálsri samkeppni.
Vegagerðin vísar einnig í bréf frá ESA þar sem tekið er fram að skylt sé að hverfa frá áformum um einkarétt á akstursleiðinni samkvæmt EES-rétti. Sú fullyrðing skýtur skökku við þar sem á öllum hinum Norðurlöndunum eru akstursleiðir frá alþjóðaflugvöllum taldar hluti af almenningssamgöngum enda hefur almenningur hag af hagkvæmum og greiðum samgöngum við alþjóðaflugvöll. Því spyr ég hæstv. ráðherra hvort ESA hafi fengið lýsingu á því heildstæða almenningssamgöngukerfi sem byggt hefur verið upp á Suðurnesjum. Í Evrópurétti er heimilt að ríki veiti sérleyfi á almenningssamgöngur og að ágóða af arðbærum leiðum megi nýta til að bæta þjónustu á óarðbærum leiðum svo fremi sem kerfið í heild skili ekki hagnaði. Danmörk hefur fengið viðurkenningu framkvæmdarstjórnar ESB um að ríkið styrki einmitt slík kerfi.
Ferðir milli flugstöðvarinnar og Reykjavíkur uppfylla öll skilyrði sem notuð eru til skilgreiningar á almannaþjónustu. Almenningur hefur aðgengi að þessum ferðum, jafnt innlendir sem erlendir. Sama á við um aðrar leiðir sem ferðamenn nýta. Ætla má að meiri hluti farþega á leiðinni Reykjavík–Landeyjahöfn séu aðrir en íbúar Vestmannaeyja. Það breytir því ekki að leiðin telst til almenningssamgangna.
Ég vil spyrja hæstv. ráðherra hvort hún telji að það að kippa leið sem ber sig út úr heildstæðu almannasamgöngukerfi landshluta sé í anda samgönguáætlunar þar sem efling almannasamgangna er boðuð.
Ég vil einnig spyrja hvort hæstv. ráðherra telur að byggja megi öflugt sjálfbært almannasamgöngukerfi ef ekki má nýta ávinning af einni leið til að bæta upp aðra, eða mun umtalsverðum fjármunum verða bætt við úr ríkissjóði til að bæta upp tjónið sem hlýst ef arðbær leið er tekin út? Mun hæstv. ráðherra beita sér fyrir því að fleiri arðbærar leiðir verði teknar út úr kerfum í öðrum landshlutum, svo sem Reykjavík–Landeyjahöfn, Reykjavík–Akranes eða kannski Hlemmur–Fell?