almenningssamgöngur.
Herra forseti. Ég tek undir með málshefjanda að við eigum að gera allt sem í okkar valdi stendur til þess að almenningssamgöngur verði sem öflugastar. Ég þakka ráðherra ágætissvör.
Mig langaði að fjalla um þetta mál út frá Eyþingi, samtökum sveitarfélaga á Eyjafjarðarsvæðinu, því þau sitja uppi með gríðarlegan rekstrarvanda eftir árið 2013 og það liggur ekki enn þá fyrir hvernig hann verður leystur. Eyþing hefur rætt þessi mál á nokkrum fundum, bæði við samgönguráðuneytið og vegamálastjóra, nú síðast 16. janúar. Það var ámálgað við vegamálastjóra að Vegagerðin tæki aftur við verkefninu ef ekki tækist að fá úrlausn mála og gera verkefnið rekstrarhæft. Rekstrargrundvöllur m.a. vegna farþegafjölda virðist vera mjög misjafn eftir landshlutum og því vakna spurningar um hvaða greining hafi legið til grundvallar þeim framlögum sem Vegagerðin greiðir.
Eins og hér kom fram er greiddur sérstakur þróunarstyrkur sem er mun hærri til þeirra svæða sem liggja næst höfuðborginni þar sem farþegafjöldinn er mestur og þar með tekjumöguleikarnir. Þá hafa landshlutasamtökin m.a. verið krafin af SSV um að taka þátt í taprekstri almenningssamgangna á Vesturlandi með vísun í leið 57 milli Akureyrar og Reykjavíkur. Það hefur þó ekki verið sýnt fram á taprekstur á þeirri leið, því hefur því verið hafnað. Það hefur líka komið fram ágreiningur um uppgjör á leið 56 til Austurlands frá Akureyri sem hefði þýtt aukaútgjöld til Eyþings sem ekki var gert ráð fyrir í rekstrinum.
Þetta er gott verkefni og ráðherra talaði aðeins um að endurskoðun hefði staðið yfir. Ég spyr: Hvenær megum við eiga von á því að endurskoðun og greiningu á þessu verkefni um almenningssamgöngur ljúki? Því var m.a. lofað á fundi með fulltrúum Eyþings bæði í ráðuneytinu í september og aftur með landshlutasamtökunum í október. Þetta hefur tekið ansi langan tíma.
Svo langar mig að spyrja í lokin hvort ráðherra telji að það megi sækja um einhvers konar undanþágu vegna þessara samkeppnisleiða sem hún vísaði til að lögum samkvæmt mættu ekki falla inn í reksturinn.