143. löggjafarþing — 62. fundur,  12. feb. 2014.

almenningssamgöngur.

[16:40]
Horfa

Róbert Marshall (Bf):

Virðulegur forseti. Ég er að mörgu leyti sammála hv. þm. Brynjari Níelssyni í þessu máli. Það er auðvitað til hagsbóta fyrir neytandann að hafa val. Menn verða líka að hafa það í huga að komi ferðamenn út úr Leifsstöð og standi frammi fyrir tveimur, þremur, fjórum eða fimm ólíkum rútufyrirtækjum þá er það ekki neitt sérstaklega þægilegt val. Í mínum huga er alveg ljóst að það þarf að bjóða út þessa leið og einhver þarf að sjá um þennan rekstur. Ég held í sjálfu sér að það sé mjög mikilvægt að við berum virðingu fyrir því ferli sem hefur verið í gangi og þeim álitum sem hafa komið fram í málinu þannig að menn fylgi algjörlega lagabókstafnum en fari ekki eftir hentistefnu eða geðþótta.

Ég vil hvetja hæstv. ráðherra til að taka á þessu máli og bera virðingu fyrir ferlinu, en fara líka svolítið hraðar í verkið en gert hefur verið. Þetta hefur tekið of langan tíma og mikil óvissa er í þessu máli.

Það er mikil breyting í gangi hvað varðar almenning og almenningssamgöngur. Það höfum við sé undanfarin tvö, þrjú eða fjögur ár á höfuðborgarsvæðinu. Ég held að sú þróun eigi eftir að halda áfram. Mér finnst mikilvægt að hér verði tekin ákvörðun sem gagnast heildinni allri, en það verður líka að hafa það sjónarmið í huga þegar kemur að almenningssamgöngum fyrir Suðurnesin að ákvarðanir séu teknar eins nálægt fólkinu og mögulegt er (Forseti hringir.) þannig að almenningur hafi aðgang að þeim ákvarðanatökum og geti átt beint (Forseti hringir.) samtal við þá stjórnmálamenn sem hlutast til um verkefnin.