umferðarlög.
Virðulegur forseti. Hvað varðar einstaka þætti er lúta til dæmis að öryggi barna á bifhjólum, líkt og hv. þingmaður kom inn á, þær tölur þar lúta allar að innleiðingu reglugerða og þessarar evrópsku löggjafar sem ég hef nefnt. Það er á grundvelli þess.
Hvað það snertir að breyta því er varðar áfengismagn í blóði o.s.frv. samkvæmt umferðarlögunum tel ég farsælla að taka þá umræðu og þá vinnu inn í heildarendurskoðun á lögunum. Hér erum við bara að taka það sem við verðum að innleiða og þurfum að innleiða fyrir ákveðinn tíma. Ég tel að slíkt kalli á lengri yfirlegu og meiri umræðu heldur en þetta frumvarp á að gera. Ákvörðun var tekin í ráðuneytinu og af mér sem ráðherra, eins og ég sagði hér í upphafi, að slíkar stærri spurningar sem margar hverjar eru mjög aðkallandi — ég ætla ekki að gera lítið úr þeim en gæti náðst ágæt sátt um, það eru stærri mál en voru í frumvarpi fyrrverandi innanríkisráðherra — þurfi að mínu mati að rýna betur áður en það er tekið til meðferðar inn í þetta frumvarp sem fyrst og síðast er hugsað sem innleiðingarfrumvarp á gjörðum Evrópusambandsins.