143. löggjafarþing — 63. fundur,  13. feb. 2014.

rannsókn á leka í ráðuneyti og staða innanríkisráðherra.

[10:42]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Herra forseti. Þegar ríkissaksóknari tekur ákvörðun um að óska eftir viðeigandi meðferð lögreglunnar á kærunni byggir það væntanlega á því, en um það höfum við ekki nákvæmar upplýsingar frá ríkissaksóknara, að ríkissaksóknari hefur engar rannsóknarheimildir sem skipta máli í þessu máli. Það eina sem gerst hefur er að lögð hefur verið fram kæra. Nú sýnist mér að málið sé á þeim stað að verið sé að velta fyrir sér hvort og eftir atvikum hvernig ætti að rannsaka málið. Það eitt og sér getur ekki gefið ráðherranum tilefni til að stíga til hliðar, enda hef ég bent á að það eitt að kæra ráðherra sem situr í embætti fyrir hvaðeina sem hann kann að hafa gert eða látið ógert getur ekki eitt og sér orðið til þess að ráðherrann stígi til hliðar. Við hljótum að vera sammála um það.

Í þessu máli virðist sem allir liggi undir grun, allir sem starfa í ráðuneytinu en líka aðrir þar sem ekki hefur verið útilokað að skjalinu hafi verið lekið af einhverjum öðrum vettvangi. Að minnsta kosti hef ég ekki séð neinar vísbendingar um það. Á meðan málið er að skýrast, á meðan viðeigandi aðilar vinna einfaldlega með kæruna og leggja mat á hvernig eigi að rannsaka málið, hvort eitthvað sé yfir höfuð að finna einhvers staðar í kerfinu eða annars staðar til að taka efnislega afstöðu til kærunnar, er svo sannarlega í mínum huga engin minnsta ástæða fyrir ráðherrann til að stíga til hliðar.