143. löggjafarþing — 63. fundur,  13. feb. 2014.

viðbrögð innanríkisráðherra við lögreglurannsókn.

[11:00]
Horfa

innanríkisráðherra (Hanna Birna Kristjánsdóttir) (S):

Virðulegur forseti. Með mikilli virðingu fyrir hv. þingmanni frábið ég mér umhyggju hans gagnvart mér. Ég er með algjörlega hreina samvisku í þessu máli, ég hef ekki brotið af mér og það væri algjört ábyrgðarleysi af mér að víkja þegar mál eins og þessi, sem lúta að hælisleitendum og innflytjendum, erfið persónuleg, viðkvæm mál sem reyna á ráðuneytið og starfsfólk þess og hafa gert það á undanförnum mánuðum og munu gera það áfram, eru til umræðu og þegar lögmenn hælisleitenda kjósa að óska eftir því að málið verði skoðað frekar.

Ef ég hefði eitthvað að fela, hv. þingmaður, eða ef ég hefði brotið af mér, eins og menn leyfa sér að halda fram hér og leyfa sér að halda fram að rannsóknin beinist sérstaklega að ráðherra — hún beinist að öllum starfsmönnum innanríkisráðuneytisins, öllum starfsmönnum, þannig að þingmaðurinn hv. hafi það nú á hreinu. (MÁ: … skrifstofu Alþingis.) Ég er að tala, hv. þm. Mörður Árnason, og ég hvet þig til þess að hlusta.

Málið er bara að hv. þm. Mörður Árnason vill ekki hlusta á staðreyndirnar í málinu. Hann kýs að gera málið pólitískt, er búinn að gera það allan tímann, og ég held að hann hafi meira að segja núna í setu sinni hér sem varaþingmaður varla komið upp út neinu einasta öðru máli en þessu. Svo reynir hann að halda því fram að það geri hann af umhyggju fyrir mér. Ég biðst undan slíkri umhyggju, (Forseti hringir.) ég þarf ekkert að svara til neinna saka gagnvart hv. þingmanni (Forseti hringir.) og bið hann um að skoða málið af aðeins meiri vandvirkni, (Forseti hringir.) fagmennsku og minni pólitík.