143. löggjafarþing — 63. fundur,  13. feb. 2014.

aðkoma einkaaðila að Leifsstöð.

[11:06]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Ögmundur Jónasson) (Vg):

Hæstv. forseti. Gerumst svolítið nákvæm núna. Ef einkaaðilar setja fjármagn í flugbrautir eða byggja viðbyggingar við flughöfnina verður það hluti af Leifsstöð sem verður þá í eigu einkaaðila. Ráðherrann segir að verið sé að kanna nýjar leiðir. Þetta er engin ný leið. Hún vísaði reyndar til þess að víða erlendis hefði verið farið inn í þessa fjármögnun, aðkomu einkaaðila að innviðum samfélagsins, samgöngukerfisins.

Nú er það svo að einhver þarf að greiða fyrir uppbygginguna, notandinn og samfélagið. Það verður ekkert ódýrara með aðkomu einkaaðila. Þvert á móti verður samfélagið á endanum af arðinum af starfseminni. Í tilviki Leifsstöðvar er um að ræða umtalsverðan arð af þeirri starfsemi. Þess vegna spyr ég hæstv. ráðherra: Hvað nákvæmlega er það sem hún er að hugsa núna í framhaldinu? Það dugar ekki (Forseti hringir.) að setja einhverjar hugmyndir á flot og segja að menn séu að skoða þetta o.s.frv. Hvað er ráðherrann nákvæmlega að tala um? Ég sef ekkert rólegur fyrr en ég fæ endanlega svör við því hvort það sé virkilega á borðinu að flugbrautirnar og flugstöðvarnar í landinu, Leifsstöð og annars staðar, verði í einkaeign.