143. löggjafarþing — 63. fundur,  13. feb. 2014.

orð innanríkisráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum.

[11:12]
Horfa

Mörður Árnason (Sf):

Forseti. Það er furðulegt ráðslag hjá hv. þingmanni sem hér talaði áðan og hjá hæstv. ráðherra sem talaði á undan honum að reyna að beina sjónum að einhverju allt, allt öðru þegar um er að ræða hið góða lekamál. (Gripið fram í.) Já, það er rétt að ég fékk minnisblað sent (Gripið fram í: Sýndu okkur það.) þegar ljóst var að ég væri kominn á þing og ætlaði að taka þátt í þessari umræðu. (Gripið fram í.) Ég er algjörlega reiðubúinn að segja réttum aðilum frá því minnisblaði, sýna þeim það og afhenda. Ég tel að þetta minnisblað sé það minnisblað sem um er að ræða og er ekkert feiminn við að láta það í hendur réttra aðila.

Þetta er hins vegar viðkvæmt mál vegna þess að það eru ákveðnar persónuupplýsingar, ákveðnar dylgjur, ákveðnar ósannaðar tengingar við sakamál sem í þessu minnisblaði er að finna, því minnisblaði sem Morgunblaðið og Fréttablaðið fengu sent að sögn þeirra úr innanríkisráðuneytinu á sínum tíma. Þau (Gripið fram í.) hafa ekki afhent það og hafa ekki látið vita hvar þau fengu, (Gripið fram í.) þó að reyndum blaðamönnum þyki mjög eðlilegt að þeir geri það vegna þess að hér er ekki um upplýsingar (Forseti hringir.) að ræða sem er í almannahag að fari út, heldur (Forseti hringir.) upplýsingar sem ætlaðar voru inn í áróðursstríð sem þá stóð um (Forseti hringir.) þann tiltekna hælisleitanda sem hér skiptir máli. (Gripið fram í.)