143. löggjafarþing — 63. fundur,  13. feb. 2014.

staða landvörslu.

[13:57]
Horfa

Brynhildur Pétursdóttir (Bf):

Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir þessa umræðu, hún er framhald af umræðu sem var hér í vikunni um málefni ferðaþjónustunnar og ágang ferðamanna á landið. Það er ástæða til að hafa áhyggjur af þeirri stöðu sem er komin upp. Ég hef í sjálfu sér enga skoðun á því hvort landverðir eiga að heyra undir Umhverfisstofnun eða aðra stofnun, sveitarfélögin eða hvernig það er. Það mikilvægasta er að þessi gæsla sé til staðar, þessi þjónusta í rauninni. Þetta er líka þjónusta við ferðamenn.

Mér finnst líka eitt mikilvægt við þessa umræðu og það er að nú er ekki verið að skattleggja þessa grein eins og við gætum gert. Fyrsta verk ríkisstjórnarinnar á sumarþingi var að falla frá fyrirhugaðri hækkun á virðisauka á gistingu. Sum sveitarfélög þar sem þessar náttúruperlur eru verða fyrir áganginum og kostnaðinum á meðan þéttbýlisstaðir eins og til dæmis Reykjavík og Akureyri njóta í rauninni virðisaukans af ferðamanninum. Ég veit alveg hvernig það er í Þingeyjarsýslu, þar eru margar náttúruperlur og sveitarfélagið er ekki í stakk búið til að standa undir þeirri uppbyggingu sem er nauðsynleg við Goðafoss og í Mývatnssveit. Þá er ekkert óeðlilegt að ferðamennirnir séu skattlagðir og við beinum því fé síðan í uppbyggingu.

Hæstv. ráðherra boðar að hann vilji leggja fram frumvarp á vorþingi þar sem eitthvað er þá bætt úr framtíðarskipulagi í þessum málaflokki. Ég hvet hann til að gera það og koma þessu máli inn í þingið því að við erum öll sammála um að við þurfum að ganga í þessi mál og það verður að finna pening í þau. Það er alveg ljóst.