143. löggjafarþing — 63. fundur,  13. feb. 2014.

raforkustrengur til Evrópu.

59. mál
[14:55]
Horfa

Össur Skarphéðinsson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Um það bil það síðasta sem ég ætla að deila um við hæstv. iðnaðarráðherra er stefna hins góða fyrrum samstarfsflokks, Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, í þessum efnum. Ég þekki hana af löngu samstarfi. Hv. þingmaður vísaði til þess að fulltrúar þess flokks hefðu skrifað undir álitið sem felur í sér að halda vinnunni áfram. Það er alveg hárrétt. Ég þekki það af góðu samstarfi að það fólk er alltaf til sátta fallið.

Ég minnist hins vegar samþykktar flokksráðsfundar Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs um þetta efni sem var næsta afdráttarlaus. Að því er varðar minn eigin góða félaga hv. þm. Kristján L. Möller veit ég ekkert um það, ég var ekki í þessari nefnd. Ég sé bara að hann skrifar ekki þarna undir. Ég hef ekkert haldið því fram að hann sé með eða á móti, en hæstv. ráðherra getur ekki byggt á einhverju frammíkalli frá því í morgun um afstöðu hans, hann er best fallinn til þess að skýra það sjálfur.

Það er alveg rétt hjá hæstv. ráðherra að þessi umræða hefur komið fram mörgum sinnum, möguleikinn á því að flytja rafmagn til útlanda. Alltaf fallið á sama atriðinu, orkutapinu. Þegar við ræddum þetta hér fyrst í kringum 1990 var orkutapið 50%. Slógum það út af borðinu. Fyrir tíu árum var orkutapið 9%. Nú skilst mér að það sé komið milli 5 og 6%, það kemur að vísu ekki fram í álitinu, en það er lykilatriði. Fræðilega er hægt að ná því niður í 2%. Það verður auðvitað gert innan skamms og menn yrðu kannski komnir með þá tækni ef í þetta yrði ráðist.

Ég sagði heldur aldrei að þetta mál ylti á sex mánuðum. Ég sagði það hér í ræðu minni áðan og líka í morgun í andsvörum að á næstu tveimur til þremur árum gæti komið í ljós hvort þetta gangi eða ekki. Ég held að á næstu tveimur til þremur árum komi fram með hvaða hætti Evrópulöndin munu ryðjast í að framleiða með óhefðbundnum hætti gas. Það gæti breytt þessu, ekki á næstu sex mánuðum.