markaðar tekjur ríkissjóðs.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi um svokallaða markaða tekjustofna sem er flutt af meiri hluta hv. fjárlaganefndar. Ástæðan fyrir því hvað þetta kemur seint, svo það sé bara sagt, er sú að þetta mál er ekki nýtt af nálinni. Þetta var ekki samið af þessari hv. fjárlaganefnd heldur fyrri hv. fjárlaganefnd og hefur verið í umræðu innan hv. fjárlaganefndar og í þinginu um mjög langt skeið og ég verð að taka það á mig hvað þetta kemur seint fram. Það var talið að öll hv. fjárlaganefnd yrði á málinu og þess vegna var komið til móts við allar þær óskir sem hv. stjórnarandstaða hafði í málinu sem vildi fara sér hægt hvað þetta varðaði. Auðvitað er alla jafna reynt að koma til móts við hv. stjórnarandstöðu en í þessu tilfelli var það sérstaklega gert vegna þess að menn töldu að hér yrði um algjöra samstöðu að ræða varðandi flutning á þessu. Það höfðu nefnilega ekki komið fram neinar efnislegar athugasemdir í hv. fjárlaganefnd um málið. Svo fór þó ekki.
Það skal tekið alveg skýrt fram að þetta er ekki þannig mál að það eigi að keyra það í gegn með hraði. Það stendur ekki til. Það er hins vegar afskaplega mikilvægt fyrir umræðuna að það komi fram að það var leitað umsagna og við ræddum við þá fjölmörgu aðila sem tengjast þessu. Ég hef nú þegar fengið allra handa ábendingar um leið og þessu var dreift og varð ljóst að ég væri 1. flutningsmaður. Það er vel en það er afskaplega mikilvægt að fjárlögin og opinber fjármál verði til umræðu, ekki bara á hv. Alþingi heldur líka í þjóðfélaginu.
Á þriðjudaginn flutti ég fyrir hönd hv. fjárlaganefndar skýrslu Ríkisendurskoðunar um fjárlög á Íslandi og við tókum umræðu um hana. Í örstuttu máli má segja að við fáum algjöra falleinkunn. Agaleysi í opinberum fjárlögum er fyrir neðan allar hellur. Í þeirri skýrslu sem vísað er í hjá Ríkisendurskoðun kom í ljós að nærri 40% fjárlagaliða fara fram úr. Það þýðir fullkomið agaleysi. Ég tók eftir því að ekki einn einasti fjölmiðill tók upp neitt af umræðunni og ég veit ekki hvort það sama verði upp á teningnum hér en við verðum að fá almenna umræðu um þessi mál, þ.e. aga í ríkisfjármálum og hvernig við ætlum að taka á þeim þáttum. Þar gegnir fjórða valdið lykilhlutverki vegna þess að það er best til þess fallið að koma upplýsingum til almennings. Ég mun taka þetta mál upp, aga í ríkisfjármálum, allt þetta kjörtímabil og ég mun ekki hætta því fyrr en við höfum náð árangri.
Hér er minnisblað frá síðustu hv. fjárlaganefnd sem fór til Svíþjóðar. Hún fór yfir það af hverju Svíar hafa náð þeim árangri sem þeir hafa náð. Þeir voru í svipuðum sporum og við en þeir tóku sig á og ég ætla að lesa helstu niðurstöðurnar úr þessari Svíþjóðarferð. Þetta er stutt og einfalt og ef við förum eftir þessu náum við þeim árangri sem við viljum. Þetta eru minnispunktar frá 30. mars 2012 og innihalda helstu niðurstöður úr Svíþjóðarferðinni hjá hv. fyrrverandi fjárlaganefnd.
1. Það var samstaða allra stjórnmálaflokka og embættismanna um að koma í veg fyrir að bankakreppa eins og fyrir 20 árum endurtæki sig í Svíþjóð.
2. Til staðar eru laga- og verklagsreglur sem taka heildstætt á öllum þáttum opinberra fjármála og fjármálastöðugleika.
3. Fjárlagafrumvarp er heildstætt og gegnsætt, þ.e. allar laga- og reglugerðarbreytingar sem nauðsynlegar eru til að forsendur frumvarps nái fram að ganga eru birtar samhliða frumvarpinu. Stefnan er sett af ríkisstjórn, ekki einstökum ráðuneytum eða stofnunum heldur svokölluð „top-down-aðferð“ við fjárlagagerð.
4. Einfaldar fjármálareglur eru einkenni á umfjöllun öryggisfjármála. Þær eru:
Markmið um afgang af ríkisfjármálum sem nemur ákveðnu hlutfalli af landsframleiðslu miðað við hagsveiflu. Nú í nokkur ár hefur markmiðið verið 1% afgangur. Útgjaldaþak til þriggja ára skipar 27 málaflokka ríkissjóðs. Undantekning er vaxtagjöldin sem eru ekki með þaki enda er bókhald á greiðslugrunni. Þakið er sett hærra en sjálf fjárlögin og skapar þannig varasjóð ef hagrænar aðstæður valda hækkun útgjalda. Sveitarfélögin verða að vera rekin með afgangi óháð hagsveiflu. Ef uppgjör eru með halla eru gefin þrjú ár til að ná rekstrarafgangi sem nemur hallanum.
5. Lagaramminn leggur áherslu á langtímahugsun þrátt fyrir að fjárlög séu aðeins til eins árs í senn. Á vorþingi er lagt fram frumvarp um ríkisfjármálastefnu. Þar er meðal annars að finna útgjaldaþak á málaflokki til þriggja, fjögurra ára. Þar er einnig að finna tekjuáætlun til jafn langs tíma. Með reglulegum hætti eru gefnar út skýrslur um sjálfbærni ríkisfjármála til margra ára og áratuga. Ríkisendurskoðun og óháðar nefndir hagfræðinga gefa út álit á forsendu ríkisfjármálastefnu og fjármálastöðugleika.
Síðan er eitt hér að lokum mjög áhugavert:
6. Fjárreiðulög takmarka mjög allar breytingar á frumvarpi til fjár- og fjáraukalaga. Stjórnarandstaðan getur ekki lagt til breytingar nema þá komi alveg nýtt fjárlagafrumvarp sem væri innan fjármálareglna.
Ef við komumst á þennan stað erum við í góðum málum, en til þess að komast á þennan stað þá þurfum við að breyta því sem snýr að mörkuðum tekjum, það er alveg ljóst.
Ég ætla aðeins að renna í gegnum greinargerðina þar sem farið er yfir helstu þætti þessa máls. Ég hef þá lesturinn, með leyfi forseta:
„Frumvarp þetta á sér nokkurn aðdraganda, en á undanförnum árum hefur oft komið til umræðu að æskilegt væri að draga úr þeirri víðtæku mörkun ríkistekna sem lengi hefur tíðkast, bæði til að einfalda og styrkja fjárstjórnarvald Alþingis og fjármálastjórn stjórnsýslunnar og til að draga úr ógagnsæi og sveiflum sem þetta fyrirkomulag veldur í fjárreiðum þeirra aðila sem tekjurnar renna til. Það sjónarmið hefur einnig komið fram að mikilvægt sé að allar stofnanir ríkisins sitji við sama borð þegar kemur að ákvörðun fjárheimilda og aðhaldsráðstafana. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur tekið undir þessi sjónarmið og fjárlaganefnd Alþingis hefur margoft tekið undir gagnrýni Ríkisendurskoðunar á núverandi fyrirkomulag vegna markaðra tekna.“
Ég vek athygli á því að hér er verið að fara yfir það að stofnanir sitji við sama borð. Sumar stofnanir fá núna markaðar tekjur sem eru alla jafna ekki í tengslum við hina raunverulegu þörf þeirra og sömuleiðis er það þannig að þegar kemur að sparnaði og aðhaldi eru þær stofnanir sem eru beint á fjárlögum, eru ekki með markaðar tekjur, í verri stöðu en hinar sem eru með mörkuðu tekjurnar. Það er óháð því hvernig við forgangsröðum. Ég held að flestir séu sammála því, a.m.k. í orði þó að það hafi ekki verið í verki, að leggja áherslu á að halda utan um og styrkja sérstaklega og standa vörð um heilbrigðisþjónustuna. Samt er heilbrigðisþjónustan ekki fjármögnuð með mörkuðum tekjum. Þegar menn skoða þróun í ríkisfjármálum sjá þeir að þar hefur verið mikill niðurskurður en á móti kemur að við sjáum hinar ýmsu stofnanir, t.d. eftirlitsstofnanir, sem hafa stóraukið tekjur sínar og hafa vaxið jafnt og þétt þrátt fyrir að mér vitanlega hafi enginn lagt á það áherslu að það ætti sérstaklega að standa vörð um þær en taka niður heilbrigðis- og löggæslumál svo dæmi séu tekin.
„Með mörkuðum tekjum er átt við lögþvingaðar ríkistekjur sem samkvæmt sérlögum eru sérstaklega eyrnamerktar til þess að standa undir kostnaði við tiltekna málaflokka, verkefni eða stofnanarekstur. Markaðar tekjur skiptast í tvo meginflokka. Annars vegar er um að ræða skatttekjur sem ráðstafað er til tiltekinna verkefna, án þess að veitt sé þjónusta á móti tekjunum, og hins vegar aðrar rekstrartekjur ríkissjóðs sem eru einnig lögþvingaðar en þá er skilyrt að á móti komi þjónusta stofnunar.
Þó að hætt yrði að færa markaðar tekjur og aðrar rekstrartekjur í reikninga stofnana yrðu þessar tekjur eftir sem áður færðar í reikningshaldi ríkissjóðs og þar tiltækar til samanburðar við útgjöld viðkomandi stofnana og málaflokka. Markaðar tekjur eru af margvíslegum toga og eru tilgreindar í fjölda sérlaga. Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á mörgum lögum í því skyni að leggja af markaðar tekjur. Þær renni því ávallt í ríkissjóð og séu ekki færðar í bókhaldi stofnana eða fjárlagaliða á gjaldahlið ríkisins.
Jafnframt er gert ráð fyrir að viðkomandi fjárlagaliðir fái beint framlag úr ríkissjóði jafn hátt áætluðum tekjum. Þannig felur frumvarpið ekki í sér skerðingu á framlögum til stofnana heldur eingöngu breytingu á framsetningu reikningsskila þeirra. Ekki er gert ráð fyrir breytingum á reikningshaldi eða öðru fyrirkomulagi vegna sértekna stofnana.
Ávinning af þessum breytingum má draga saman í eftirfarandi þætti:
Ákvarðanir um ráðstöfun á ríkistekjum verða einungis teknar í fjárlögum og fjáraukalögum.
Eftiráheimildir í lokafjárlögum leggjast af.
Óvissu eytt um það hverjar séu fjárheimildir stofnana á fjárlagaárinu.
Útgjaldavöxtur í gegnum sjálfvirkt streymi ríkistekna til stofnana leggst af.
Einfaldar fjárlagagerð og reikningsskil stofnana, gerð ríkisreiknings og lokafjárlaga.
Styrkir og einfaldar fjármálastjórn ríkisstofnana og ríkisins í heild.
Styður við útgjaldamarkmið rammafjárlagagerðar.
Styður við fjárveitingar- og fjárstjórnarvald Alþingis.“
Hér er bara verið að lýsa stöðunni eins og hún er, að það er ekki sjálfgefið að þær áherslur sem menn hafa varðandi fjárlögin — og við getum bara sagt það sem menn eru kosnir til — gangi eftir í vinnu í fjárlögum út af þessari skekkju. Við erum með 17% af tekjunum sem fara í gegnum markaðar tekjur og fara í mörgum tilfellum beint til viðkomandi stofnana þrátt fyrir að ekki sé sýnt fram á þörfina. Það eru því miður mörg dæmi um það. Það hefur bara með allt aðra hluti að gera. Stærsti hluti stofnana þarf að færa rök fyrir því af hverju hann þarf viðkomandi fjármuni og sækja þá og síðan er það stjórnmálamanna að forgangsraða hluta af skatttekjum. Við skulum ekki gleyma því að engin stofnun fær einhverjar tekjur af himni ofan. Allar stofnanir fá tekjur vegna þess að Alþingi er búið að ákveða einhvern skattstofn sem í sumum tilfellum rennur til viðkomandi stofnunar. Eins og hér kemur fram erum við með sérstöðu hvað þetta varðar, við erum með svo hátt hlutfall af mörkuðum tekjum á Íslandi.
Ég tel afskaplega mikilvægt að við förum yfir þessa þætti og skoðum hvernig við getum minnkað þetta hlutfall. Ég held því ekki fram að það sé algerlega hægt að hætta við markaðar tekjur en svo sannarlega er þetta mál sem við þurfum að fara yfir og alla þá liði sem hér eru. Ég vek athygli á því að til dæmis á miðri síðu 15 er talað sérstaklega um Vegagerðina. Þar segir, með leyfi forseta:
„Í fjárlögum eru öll framlög til vegamála talin vera fjármögnuð með mörkuðum skatttekjum nema annað hafi sérstaklega verið ákveðið. Nægi tekjur viðkomandi árs ekki til að fjármagna fjárveitingar hefur í reynd verið gert ráð fyrir að ríkissjóður veiti stofnuninni vaxtalaust lán fyrir því sem upp á vantar og að það verði endurgreitt af framtíðartekjum sem markaðar eru vegamálum og Vegagerðinni. Uppsöfnuð áhrif þessa fyrirkomulags eru m.a. þau að samkvæmt ríkisreikningi 2012 er höfuðstóll Vegagerðarinnar í árslok jákvæður um rúmar 400 millj. kr. en bundið eigið fé neikvætt um 16,1 milljarð kr. Þetta þýðir að reikningsfærð útgjöld hafa verið 400 millj. kr. innan fjárheimilda en fjárveitingar fjármagnaðar með mörkuðum tekjum 16,1 milljarði kr. umfram tekjurnar. Vandséð er að þetta fyrirkomulag markaðra tekna í vegamálum þjóni nokkrum tilgangi lengur. Mun gagnsærra og einfaldara fyrirkomulag væri að láta þessa tekjustofna renna í ríkissjóð og veita í þess stað bein framlög til reksturs og framkvæmda í vegamálum í samræmi við ákvarðanir og forgangsröð stjórnvalda um umsvifin á hverju fjárlagaári.“
Samkvæmt ríkisreikningi skuldar Vegagerðin ríkissjóði 16,1 milljarð af því að alþingismenn tóku ákvörðun um að fara í vegaframkvæmdir umfram það sem nemur mörkuðu tekjunum — nema hvað? Það er bara eðlilegt. En hverjum gagnast þessi leikur að Vegagerðin skuldi ríkissjóði 16,1 milljarð? Það ætti auðvitað að grípa til mjög harkalegra aðgerða gagnvart þessari Vegagerð sem skuldar 16,1 milljarð en það hefur bara ekkert með Vegagerðina að gera. Það er forgangsröðun stjórnvalda. Þetta eru bókhaldskúnstir sem enginn græðir á.
„Annað dæmi er ráðstöfun á mörkuðum tekjum af tryggingagjaldi til lífeyristrygginga. Tilgangurinn hefur upphaflega verið að mörkuðu tekjurnar fjármögnuðu að fullu útgjöld lífeyristrygginga. Sú hefur þó ekki verið raunin þar sem ríkissjóði ber að greiða fyrir þau lífeyrisréttindi sem ákvörðuð eru í lögum óháð því hvort tryggingagjaldsstofninn hækki eða lækki milli ára. Á undanförnum árum hefur fjármögnun útgjalda lífeyristrygginga með tryggingagjaldinu farið stöðugt minnkandi. Það skýrist m.a. af ákvörðunum stjórnvalda um aukin réttindi án þess að tryggingagjaldið hafi verið hækkað til samræmis og kemur glögglega fram í eftirfarandi línuriti þar sem sést að árið 2006 námu mörkuðu tekjurnar tæpum 26 milljörðum kr. eða 77% af útgjöldunum en það hlutfall lækkaði niður í rúmlega 50% árið 2012.“
Síðar á bls. 16 er þetta dregið fram sérstaklega í línuriti.
Allt á sér sögu og á sínum tíma var tryggingagjaldinu ætlað að uppfylla þessi útgjöld og gerði það örugglega á þeim tíma þegar það var. Síðan þá hafa stjórnmálamenn ákveðið allra handa aukin útgjöld. Tryggingagjaldið hefur ekki fylgt eftir og ég held að það væri varasamt ef því yrði falið að fylgja því eftir, nógu hátt er tryggingagjaldið sem kemur beint niður á bæði launþegum og atvinnulífinu í heild sinni. Þetta er mál sem við þurfum að endurskoða. Mér finnst alveg koma til greina að við skoðum það að færa í það minnsta það sem snýr að atvinnuleysistryggingunum með sambærilegum hætti og við erum með lífeyrissjóðina sem eru að stórum hluta undir forræði Samtaka atvinnulífsins, þ.e. launþega og aðila á vinnumarkaði. Hvað sem öðru líður er þetta nokkuð sem við þurfum að fara yfir og það er mjög mikilvægt að fá aðila vinnumarkaðarins að þessari umræðu og fara yfir þetta með þeim því að þeir hafa sínar hugmyndir hvað þetta varðar.
Kerfið eins og það er núna er komið langt frá uppruna sínum. Ég nefndi hérna tvö dæmi, annars vegar lífeyristryggingarnar þar sem það er algjörlega ljóst og búið að vera til langs tíma að tekjuhliðin nær ekki í gjaldahliðina og engar líkur á því að öllu óbreyttu að það verði. Það hefur samt örugglega neikvæð og heftandi áhrif á það að lækka til dæmis tryggingagjaldið og á sama hátt og færa má full rök fyrir því að það sé ekki nægt aðhald þegar kemur að útgjöldunum hvað þetta varðar. Þetta er annað dæmið.
Hitt dæmið er Vegagerðin og ég veit að það muni koma mörgum á óvart að hún skuldi ríkissjóði 16,1 milljarð. Ef menn trúa því og telja að þetta sé raunin og eðlilegt má setja verulega ofan í við ríkisvaldið fyrir að hafa ekki farið í harðari innheimtuaðgerðir til að ná í þennan 16,1 milljarð. En það er ekki gert vegna þess að hér er komið kerfi sem er komið langt frá því sem lagt var upp með fyrir einhverjum áratugum.
Við fórum nokkuð nákvæmlega yfir ýmsa þætti. Það er ýmislegt sem er ekki gert ráð fyrir að leggja niður, þ.e. að hætti sem markaðar tekjur. Eitt af því er afnotagjöld Ríkisútvarpsins og það var gert til að ná sem bestri sátt um þetta. Það er fyrir utan, það er gert ráð fyrir að það verði áfram sem sérstakt afnotagjald. Bara hluti af afnotagjaldinu hefur farið til Ríkisútvarpsins, 77% af því 2009, 95% 2010, 79% 2011, 75% 2012, 77% 2013 og núna fyrir þessi fjárlög er hækkun upp á 83% sem fer af þessu svokallaða afnotagjaldi eða nefskatti inn í Ríkisútvarpið. Það munar 925 milljónum árið 2013. Við erum með afnotagjöld af Ríkisútvarpinu sem flestir telja að fari í Ríkisútvarpið eða að sé hugmyndin á bak við það, en um 700 milljónir eru teknar í annað núna sem er veruleg lækkun milli ára. Það er mín skoðun að ekki sé forsvaranlegt að forgangsraða með þeim hætti að setja allt það sem við tökum í þessum nefskatti til Ríkisútvarpsins. Ég tel að þetta ætti frekar að heita einhvers konar menningarskattur og gæti hugsanlega þá skipst á milli innlendrar dagskrárgerðar og innlendrar framleiðslu á til dæmis kvikmyndaefni og það væri ekki óeðlilegt að mínu áliti. Ég tek fram að þetta eru bara mínar skoðanir og mínar hugrenningar og er hvorki í þessu frumvarpi né stefna meiri hluta fjárlaganefndar, hvað þá hv. fjárlaganefndar. Bara af því að við erum að ræða þessi mál og ég leyfi mér að fara svolítið vítt um og tala um fleira en snýr beint að þessu frumvarpi tek ég fram þá skoðun mína að það væri til dæmis hugmynd að skipta þessu á milli kvikmyndagerðarinnar og Ríkisútvarpsins. Þar værum við að innheimta gjald sem hefði það að markmiði að styrkja innlenda dagskrárgerð í sjónvarpi og sömuleiðis í kvikmyndum. Ég tel, sérstaklega miðað við núverandi aðstæður, ekki forsvaranlegt að setja allt þetta gjald inn í Ríkisútvarpið.
Síðan hafa heyrst aðrar hugmyndir, t.d. að byggja nýjan spítala. Það er áhugavert og vel þess virði að skoða. Ég tel að það þurfi í það minnsta að fara yfir þessi mál en ég tek fram að það sem snýr að afnotagjaldinu er ekki í þessu frumvarpi. Samkvæmt frumvarpinu er ekki gert ráð fyrir að sú mörkun verði lögð af í þessari umferð í það minnsta en auðvitað eigum við eftir að fara yfir þetta í hv. fjárlaganefnd.
Ég hef aðeins orðið var við það, svo það sé alveg sagt um þetta mál, að ýmsir hafa brugðist við eftir að þessu frumvarpi var dreift og haft samband við mig, og í það minnsta einn fjölmiðill. Mörgum bregður svolítið við og telja að þarna sé um það að ræða að verið sé að taka stofnanir sem eru í rekstri, sjóði sem eru í rekstri og annað slíkt og þeir séu þá ekki lengur með neina fjármuni. Það er misskilningur. Það hefur ekkert með þetta að gera. Þótt við samþykktum þetta á eftir hefur það ekki nein áhrif á útgjaldahlið fjárlaga. Menn verða að vera meðvitaðir um að öll útgjöld ríkisins, og það er bara samkvæmt íslensku stjórnarskránni, eiga að vera samþykkt af þinginu en hins vegar er fjárstjórnarvaldið ekki nógu sterkt. Það er ein af ástæðunum fyrir agaleysinu. Þótt markaðar tekjur væru teknar af einhverjum lið, sama hvaða liður það væri, gætum við alveg aukið útgjöldin til þess málaflokks sem mörkuðu tekjurnar eiga að fjármagna.
Þegar menn skoða þetta er þetta fyrirkomulag í mjög mörgum tilfellum í orði en ekki á borði. Ég nefndi hérna lífeyristryggingarnar en það má nefna ýmislegt annað í því sambandi. Það er í báðar áttir. Stundum eru einhverjar markaðar tekjur sem eiga að fara í ákveðinn málaflokk og menn sækja þá fjármuni og setja í annað eða láta viðkomandi stofnun, sjóð og annað slíkt sinna einhverju hlutverki sem það á ekki að sinna miðað við þær hugmyndir sem lagt var upp með. Það er annars vegar það og síðan hafa menn líka verið að ákveða útgjöld sem mörkuðu tekjurnar eru ekki nægjanlegar til að standa undir og þá kemur það auðvitað allt beint úr ríkissjóði. Reyndar er þetta allt saman ríkissjóður. Þetta snýst bara um að þetta eru mismunandi vasar á flíkinni. Samkvæmt íslensku stjórnarskránni og í samræmi við stjórnarskrár annarra þjóða má ekki samþykkja nein útgjöld nema þing ákveði þau. Eins og ég rakti hér og er rakið í greinargerðinni er erfitt að stýra þessum málum meðan við erum með jafn hátt hlutfall og raun ber vitni sem markaðar tekjur.
Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að hafa þetta lengra. Ég vona að þetta mál fái góða og málefnalega umfjöllun. Ef einhver velkist í vafa með það erum við að fara af stað í vegferð, við erum að fara í samráð og samræðu við þá aðila sem tengjast þessu máli. Það hefði verið betra að málið hefði komið fram fyrr því að þetta þarf góða yfirlegu en það stendur ekki til að keyra þetta í gegn á miklum hraða. Loksins er málið komið fram í þinginu þannig að við getum fengið umsagnir frá þeim ýmsu aðilum í þjóðfélaginu sem munu láta sig málið varða. Ég vona að umræðan, auðvitað um öll mál en sérstaklega þetta mál, verði málefnaleg og byggð á staðreyndum því að það er hagur okkar allra og grundvallaratriði til að Íslendingar geti náð árangri að við séum með styrka og örugga fjármálastjórn. Við vitum hvernig þetta getur gengið vel. Við erum með forskriftina fyrir framan okkur. Það eru þær þjóðir sem við berum okkur saman við og viljum líkjast og ég vona svo sannarlega að eftir þetta kjörtímabil náum við þeim árangri sem við viljum. Það er hagur allra, bæði stjórnar og stjórnarandstöðu, að allir landsmenn verði meðvitaðir um mikilvægi þess að hafa ábyrga fjármálastjórn.