markaðar tekjur ríkissjóðs.
Virðulegi forseti. Ég held að við þurfum að forðast líka embættislega hugsun í þessu máli. Ég hef margoft heyrt rökin fyrir því að afnema markaða tekjustofna, en mér hefur alltaf fundist það frekar byggjast á embættislegri hreintrúarstefnu en nauðsynlega úthugsaðri pólitískri stefnumörkun.
Ég ítreka það sem ég sagði áðan að ég get séð fyrir mér og veit mörg dæmi þess að menn hafa til að verja tiltekin verkefni og koma þeim fyrir með ákveðnum hætti búið þeim markaða tekjustofna á fyrri tíð og sjálfsagt er að fara með krítískum hætti í gegnum það. En fyrirkomulag greiðslu í Atvinnuleysistryggingasjóð verður ekki afnumið í landinu öðruvísi en með samkomulagi við aðila vinnumarkaðarins og með því að því fyrirkomulagi verði komið fyrir með öðrum hætti. Ef ríkið vill ekki reka atvinnuleysistryggingasjóð verður þá að verða til atvinnuleysistryggingasjóður annars staðar. Þær tekjur verða ekki teknar í ríkissjóð og ríkið lofar síðan mönnum að inna þær af hendi á síðari stigum. Alveg sama með Ábyrgðasjóð launa. Það eru grundvallarmannréttindi sem felast í því að fá laun greidd þrátt fyrir gjaldþrot fyrirtækja, og það er forsenda fyrir tilteknum félagslegum réttindum í landinu.
Þess vegna segi ég að kannski er í lagi að kasta netunum svona vítt hér við 1. umr. í málinu, en ég tel engin efnisrök til þess að fella niður alla þá mörkuðu tekjustofna sem hér eru greindir og líta svo á að í reynd felist í greiðslu þeirra bara ígildi skatts. Ríkið tók á sínum tíma Atvinnuleysistryggingasjóð yfir — hann var rekinn með öðrum hætti — og það var vegna þess að ríkið ætlaði að halda honum sérgreindum og tryggja tiltekin réttindi á grundvelli þess. Ef ríkið vill ekki taka það verkefni að sér áfram verður ríkið að afhenda það einhverjum öðrum.