staða tónlistarskóla.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Ég skil hann sem svo að hann hyggi ekki á breytingar að því leyti að sveitarfélög haldi áfram að bera ábyrgð á rekstri tónlistarskóla, þar með talið framhaldsstiginu.
Það er hárrétt hjá hæstv. ráðherra að þegar samkomulag var gert var vissulega hluti af markmiðunum að rjúfa þá átthagafjötra sem verið höfðu á milli sveitarfélaga, en það var líka ástæða fyrir því að valin var sú leið að ríkið styrkti framhaldsstigið, sem er sú að ríkið rekur í raun framhaldsstig í almennri menntun. Það var því talin eðlileg nálgun. Það er líklega skýringin á þessum mismunandi skilningi milli einstakra sveitarfélaga og svo ríkisins.
Ég tel hins vegar að það sé mjög brýnt og því vil ég inna hæstv. ráðherra eftir tímasetningum. Sér hæstv. ráðherra fram á að það náist að ljúka frumvarpi um listamenntun og leggja það fram á þinginu innan rétts tímaramma þannig að við getum lokið þeirri vinnu? Ef það tekst ekki verður þá lokið við fullnægjandi endurskoðun á samkomulaginu á þessari öld þannig að við þurfum ekki lengur að horfa framan í þessa óvissu?