143. löggjafarþing — 64. fundur,  18. feb. 2014.

skýrsla aðila atvinnulífsins um ESB.

[13:46]
Horfa

Helgi Hjörvar (Sf):

Virðulegur forseti. Vegna orðaskiptanna áðan er hæstv. utanríkisráðherra maður að meiri að biðjast afsökunar á þessum leka, kannski út af fyrir sig að þessi skýrsla leki í því ljósi að lítið nýtt er að sjá í henni í fljótu bragði og ef til vill ekki mikið fréttnæmt.

Hitt er fréttnæmt að utanríkisráðherra lýsti því yfir í hádeginu að ekkert yrði horft til þeirrar skýrslu sem verkalýðshreyfingin og atvinnulífið er að láta vinna um Evrópumálin.

Ég spyr hæstv. utanríkisráðherra: Er ríkisstjórnin orðin svo algerlega viðskila við sameinaða forustu atvinnulífs og verkalýðshreyfingar í landinu að hún sé fyrir fram búin að ákveða að hlusta ekkert á sjónarmið þeirra í stærsta hagsmunamáli þjóðarinnar? Er búið að ákveða það fyrir fram að það verði hreinlega ekkert hlustað?

Ég spyr hæstv. utanríkisráðherra um orð hans, að það sé ekki gert vegna þess að skýrslan sé pöntuð af fylgjendum Evrópusambandsaðildar. Þýðir það að skýrsla þeirra sé ómarktæk? Er hæstv. utanríkisráðherra þá að gagnálykta af eigin reynslu eða var hann ekki sem Evrópuandstæðingur að panta skýrslu um Evrópumálin? Eigum við sem erum öndverðrar skoðunar við hann að líta svo á fyrir fram að ekkert sé að marka hana, það sé bara hægt að afgreiða hana út af borðinu og það þurfi ekkert að hlusta á hana af því að hún sé pöntuð af andstæðingi aðildar að Evrópusambandinu?

Hvers konar samráð er það eiginlega í einu samfélagi ef einn æðsti ráðamaður þjóðarinnar lýsir því yfir að ekki eigi að taka neitt tillit í stefnumörkunarvinnu stjórnvalda til skýrslugerðar sem sameinað atvinnulífið og forusta verkalýðshreyfingarinnar hefur óskað eftir? Að það eigi ekki einu sinni að láta svo lítið að hlusta á sjónarmiðin, ræða það sem fram kemur?

Voru þetta einhvers konar mismæli? Er ég að mistúlka hæstv. utanríkisráðherra eða vill hann grípa tækifærið og draga í land með þessar yfirlýsingar? Ég verð satt að segja að lýsa því yfir að mér finnast þær ekki vera ýkja málefnalegar.