143. löggjafarþing — 65. fundur,  19. feb. 2014.

stefnumótun í vímuefnamálum.

[16:11]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka kærlega fyrir þessa umræðu. Hún er mjög þörf eins og fram hefur komið. Mig langar líka að hafa það á hreinu að þrátt fyrir þá umræðu sem til er í samfélaginu, um að lögleiða fíkniefni, og þá er yfirleitt talað um kannabisefni, þá er það ekki umræða sem við tökum hér og nú. Enda ekki tilefni til.

Það sem við erum að gera núna sem samfélag er að við erum að refsa fólki sem á við miklu alvarlegri vandamál að stríða en kannabisefni, þar á meðal áfengi, amfetamín, kókaín að ógleymdu læknadópinu svokallaða. Við eigum ekki að afglæpavæða fíkniefni vegna þess að þau séu skaðleg heldur vegna þess að þau eru stórhættuleg. Við viljum væntanlega að fólk nýti sér þjónustu yfirvalda, nýti sér öryggisnetið. Þá þarf fólk bæði að þora það og vilja. Þá er mikilvægt að fólk upplifi það ekki svo, sem það því miður gerir í dag, að ríkið sé óvinurinn. Þó að fólk sé ekki dæmt í fangelsi þá munar um 40–50 þús. kr. sekt og þrjú ár á sakaskrá. Það munar um þetta fyrir fólk, sérstaklega ef það á bágt, á kannski erfitt með að tolla í vinnu o.s.frv. Þetta skiptir miklu máli fyrir fólk.

Ég vildi leiðrétta það að ég er ekki að tala um lögleiðingu á neinu. Tölum bara um vandamálið eins og það er, það er heilbrigðisvandamál. En það gleður mig að fólk vill ræða þetta hér og telur umræðuna mikilvæga vegna þess að hún er það. Við höfum 40 ára reynslu af refsistefnu. Það er ekki eins og hún hafi fæðst í gær. Það er ekki eins og við séum að hlaupa til við fyrstu vísbendingu um að eitthvað gangi ekki eins og við ætluðum. Það er alveg óhætt að segja að stefnan virkar ekki og þá ber okkur skylda til að endurskoða hana.

Ég þakka kærlega fyrir umræðuna og sérstaklega hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir víðsýni og opinn huga í þessum málum. Ég lýk ræðu minni á þeim orðum.