143. löggjafarþing — 65. fundur,  19. feb. 2014.

aðildarviðræður við Evrópusambandið.

320. mál
[16:43]
Horfa

utanríkisráðherra (Gunnar Bragi Sveinsson) (F) (andsvar):

Herra forseti. Hv. þingmaður ætti nú að vita, búinn að vera að bauka við þetta í fjögur ár, að það er ekki í boði neitt svar í sjávarútvegsmálum. Ég geri ekki ráð fyrir að Evrópusambandið geti hlýjað Finnum en ég held hins vegar að Evrópusambandið geti numið úr gildi þessa tímabundnu undanþágu.